„Það væri óskastaðan“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. apríl 2026 12:32 Snorri Steinn fær góðan tíma með nýjum mönnum í komandi verkefni. Aðrir fastamenn fá stærra hlutverk en þeir hafa fengið í undanförnum verkefnum. Vísir/Vilhelm Heldur óhefðbundinn landsliðshópur var opinberaður af Snorra Steini Guðjónssyni í gær fyrir leiki Íslands í Egyptalandi í maí. Einhverjir fá hvíld á meðan aðrir eru meiddir. Í því leynast tækifæri fyrir aðra.
Margur rak upp stór augu þegar landsliðshópurinn var kynntur í gær. Þremenningarnir úr Magdeburg, þeir Gísli Þorgeir, Ómar Ingi og Elvar Örn eru til að mynda allir fjarverandi sem og Janus Daði Smárason. Það er því nánast ný útilína sem fær að spreyta sig. „Auðvitað eru Steini [Þorsteinn Leó Gunnarsson], Haukur [Þrastarson] og Teitur [Örn Einarsson] menn sem hafa allir verið þarna og hafa gert það gott með okkur. Núna fá þeir það hlutverk að vera lykilmenn og bera uppi okkar leik í þessum leikjum. Það er kannski líka bara gott og gaman fyrir þá að vera í því hlutverki og sýna að þeir séu að narta í hina,“ segir Snorri Steinn í Sportpakkanum á Sýn í gær. „Svo eru aðrir þarna sem eru næstir inn.“ Svipuð staða er uppi með línu- og varnarmenn. Elliði Snær Viðarsson og Ýmir Örn Gíslason verða ekki með og áðurnefndur Elvar Örn hefur einnig verið lykilmaður í vörn. Þar gefast tækifæri líka. „Það liggur aðeins í hlutarins eðli. Strákarnir sem þú nefnir eru hjartað í okkar varnarleik og aðrir fá tækifæri til að stimpla sig betur inn.“ Óreyndir menn fá tækifæri Tækifæri bjóðast mönnum sem spila í þessum stöðum. Óreyndari menn á við Einar Braga Aðalsteinsson, Reyni Þór Stefánsson og Tryggva Þórisson fá tækifæri til að sanna sig - og vonandi gefa landsliðsþjálfaranum hausverk við val næsta hóps. „Ég ætla að nota þetta til að sjá hverjir ætla virkilega að negla þetta og gera sig virkilega gildandi með okkur á næsta stórmóti. Ég horfi svolítið á þetta þannig. Draumastaðan er að ég sé með hluti í höndunum sem ég sé fyrir mér að nota í janúar, að hausverkurinn væri aðeins meiri heldur en hitt. Það væri óskastaðan,“ segir Snorri Steinn. Töluvert fleira kemur fram í viðtali við Snorra Stein sem sjá má í heild að neðan. Klippa: Snorri Steinn ræðir óhefðbundinn hóp og nýja menn Landsliðshópur Íslands: Markmenn: Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (85/2) Jón Þórarinn Þorsteinsson, FH (0/0) Ísak Steinsson, Drammen (3/0) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (118/123) Bjarki Már Elísson, Veszprem (137/445) Einar Bragi Aðalsteinsson, Kristianstad (2/0) Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (36/8) Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (21/24) Haukur Þrastarsson, Rhein Neckar Löwen (58/80) Jón Bjarni Ólafsson, FH (0/0) Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg AGF Håndbold (37/72) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (43/151) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten (69/215) Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (3/2) Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (88/233) Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (58/52) Tryggvi Þórisson, Elverum (0/0) Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (27/41)
Landslið karla í handbolta Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira