Viðsnúningur í rekstri og ábyrg uppbygging innviða í Hveragerði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, Njörður Sigurðsson og Sandra Sigurðardóttir skrifa 27. apríl 2026 16:01 Á þessu kjörtímabili hefur rekstri Hveragerðisbæjar, þar sem Okkar Hveragerði hefur starfað í meirihluta, verið snúið úr 366 m.kr. tapi árið 2021 í 169 m.kr. hagnað árið 2024 og 100 m.kr. hagnað árið 2025. Þessi árangur hefur náðst á sama tíma og ráðist hefur verið í eina umfangsmestu innviðauppbyggingu í sögu bæjarins og þjónusta við íbúa bætt á mörgum sviðum. Það var ekki sjálfgefið að ná þessum þremur markmiðum samtímis; að rétta af reksturinn, fjárfesta í uppbyggingu og efla þjónustu, en það tókst. Niðurstaðan er traustari rekstrargrundvöllur til framtíðar og betri þjónusta. Uppbygging innviða Íbúum Hveragerðisbæjar hefur fjölgað mikið á síðasta ártug en uppbygging grunninnviða fylgdi ekki nægilega vel þeirri þróun. Þegar nýr meirihluti tók við eftir kosningar 2022 var ljóst að byggja þyrfti upp húsnæði fyrir leikskóla og grunnskóla, íþróttaaðstöðu, stækka fráveitu, fjölga félagslegu húsnæði og bæta aðra grunninnviði, s.s. að styrkja velferðar- og skólaþjónustu. Þetta eru lögbundin verkefni sveitarfélaga og ábyrg stjórnsýsla felst í því að sinna þessum verkefnum og mæta þannig þróun sveitarfélagsins með uppbyggingu grunninnviða. Á kjörtímabilinu hefur verið ráðist í öll þessi verkefni. Lán í innviðum tekið 2018-2022 Í raun má segja að með því að byggja ekki upp grunninnviði Hveragerðisbæjar í takt við þróun og stækkun sveitarfélagsins hafi verið tekið lán í innviðum. Ef slík uppsöfnuð þörf hefði verið færð til bókar með sama hætti og fjárhagslegar skuldir í ársreikningi árið 2021, sem var síðasta heila rekstrarár fyrrum meirihluta, er ljóst að skuldir hefðu verið miklu hærri en þær voru. Tekið á innviðaskuldinni 2022-2026 Á því kjörtímabili sem nú er að líða hefur verið unnið á þeirri miklu innviðaskuld sem sveitarfélagið stóð frammi fyrir. Það er þó ekki óskastaða neins sveitarfélags að þurfa að ráðast í jafn umfangsmikla og kostnaðarsama uppbyggingu innviða á svo skömmum tíma, en það var nauðsynlegt. Við þá miklu fjárfestingu sem ráðist hefur verið í, þá eina mestu í 80 ára sögu sveitarfélagsins, hafa því fjárhagslegar skuldir hækkað. Ástæðan er þó ekki hallarekstur, eins og á fyrra kjörtímabili, heldur markviss uppbygging innviða og þjónustu. Þá er verðbólgan í verðtryggðu lánaumhverfi auðvitað erfið öllum sem skulda. Skuldaviðmið bæjarins var 101% árið 2019, lækkaði í 91% árið 2023, er áætlað 117% árið 2026 og gert ráð fyrir að verði komið í um 97% árið 2029, nokkru lægra en það var árið 2019. Þetta eru því ekki óstjórnlegar fjárhagslegar skuldir heldur fjármögnuð uppbygging í ört vaxandi bæjarfélagi. Vegna þess að rekstur Hveragerðisbæjar hefur verið styrktur á kjörtímabilinu ræður sveitarfélagið vel við þessa miklu innviðauppbyggingu, en áfram þarf þó að sýna ábyrgð í rekstri. Pólitísk forgangsröðun Í grunninn snýst rekstur sveitarfélagsins um valkosti, þ.e. að fjárfesta í þjónustu og innviðum fyrir íbúa eins og nauðsynlegt er hverju sinni eða fresta því. Valkostirnir eru því í raun pólitísk forgangsröðun. Undir forystu Okkar Hveragerðis hefur núverandi meirihluti valið að byggja upp þjónustu og innviði á sama tíma og reksturinn hefur verið styrktur, tekjur auknar og sjálfbærni hans bætt. Dagný er bæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis, Njörður er bæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis og Sandra er forseti bæjarstjórnar og bæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar