Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. apríl 2026 13:00 Flugvélin sem hinn látni stökk úr tók á loft af Hans Christian Andersen-flugvellinum í nágrenni Óðinsvéa. Hans Christian Andersen-flugvöllur Íslenski karlmaðurinn sem lést í fallhlífaslysi á sunnudag var nemandi í lýðháskóla á Fjóni. Rannsókn málsins er í höndum lögreglu og dönsku fallhlífarsamtakanna.
Maðurinn var 24 ára og nemandi í lýðháskólanum Nordfyns sem er á Fjóni. Greint er frá andláti hans í færslu á Facebook-síðu skólans. „Það er með miklum trega sem við í Nordfyns Højskole greinum frá því að einn nemandi skólans lést í hörmulegu slysi í fallhífarstökki í gær,“ segir í færslunni. Þar kemur fram að slysið hafi átt sér stað í fallhlífarmiðstöð í Óðinsvéum á Fjóni en það sé viðurkennd fallhlífarmiðstöð á vegum dönsku fallhlífarsamtakanna (Dansk Faldskærms Union). Skólinn eigi í samstarfi við miðstöðina svo það standi nemendunum til boða að læra og prófa fallhlífarstökk. „Samkvæmt dönsku fallhlífarsamtökunum benda fyrstu upplýsingar til þess að slysið hafi orðið við lendingu með opna fallhlíf. Lögregla og björgunaraðilar voru á vettvangi og rannsóknarnefnd dönsku fallhlífarsamtakanna var einnig á vettvangi til að rannsaka atburðarásina í samvinnu við lögreglu,“ segir í færslu skólans. Aðstandendur hafi verið látnir vita og öllum sem hlut eiga að máli hefur verið boðin áfallahjálp. „Hugur okkar er hjá fjölskyldu, vinum og samnemendum nemandans. Skólinn hefur virkjað neyðaráætlun og býður nemendum og starfsfólki stuðning á þessum erfiðu tímum.“
Danmörk Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Tuttugu og fjögurra ára íslenskur karlmaður lést í fallhlífarslysi í Óðinsvéum í Danmörku í dag. 26. apríl 2026 14:11 Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira
Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Tuttugu og fjögurra ára íslenskur karlmaður lést í fallhlífarslysi í Óðinsvéum í Danmörku í dag. 26. apríl 2026 14:11