Kynferðisofbeldi gegn börnum – við þurfum að gera betur Sigurþóra Bergsdóttir skrifar 27. apríl 2026 09:15 Kynferðisofbeldi gegn börnum er mjög persónulegt mál fyrir mig. Sonur minn dó sem afleiðing af kynferðisofbeldi sem hann var beittur sem unglingur. Sonur minn var því miður ekki sá eini, allt of mörg hafa látist vegna beinna áhrifa slíks ofbeldis. Kynferðisofbeldi gegn börnum er lífhættulegt. Skömmin er stærsti fylgifiskur ofbeldisins og hún getur verið óbærileg. Réttarkerfið okkar er hins vegar ekki uppsett til að takast á við þessi mál, það bregst í að færa ábyrgðina þangað sem hún á heima og verja þolendur, sem eykur oft bara á skömm þeirra. Þá höfum við enn ekki náð að byggja upp kerfi sem tekur nægilega vel utan um þau sem verða fyrir slíkum brotum. En við erum vel búin af frábæru fagfólki og aukinni meðvitund og þekkingu um afleiðingar ofbeldis sem er sífellt að gera okkur betri í því að takast á við þessi mál. Ég sjálf fór að leita svara um hvernig við getum gert betur og í þeirri vegferð stofnuðum við Bergið headspace. Þar mætum við ungmennum á þeirra eigin forsendum, þar sem þau geta rætt hvað sem er við fagmann. Ein af mínum stærstu lexíum í minni vegferð er að við verðum að koma til móts við fólk þar sem það er statt. Okkar fyrstu viðbrögð eru oft að vilja gera eitthvað, redda málum og senda fólk í meðferðir til að lækna það. En það er ekki alltaf rétta leiðin. Það er ekki hægt að ætlast til þess að börn eða fullorðnir sem lenda í ofbeldi taki alla ábyrgð á sinni líðan eða segi frá eftir pöntun. Við þurfum frekar að styðja, hlusta og gefa þolendum ráðrúm til að stjórna sinni eigin ferð. Það þarf ekki alltaf að hlaupa upp til handa og fóta - við læknum ekki allt í einu. Við þurfum að vera til staðar, gefa rými og leyfa fólki að hreyfa sig á sínum hraða. Þannig hjálpum við fólki að ná utan um skömm og sára atburði, svo það geti heilast á eigin forsendum. ÉG LOFA Ég lofaði syni mínum að honum látnum að gera allt sem ég get til að vinna að því að við gerum þetta betur, og ég lofa að halda því áfram. Ég lofa að hlusta og taka eftir. Ég lofa að vinna að betri kerfum. Ég lofa að halda áfram að berjast fyrir meira réttlæti fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Ég lofa að styðja við allt sem hindrar að börn lendi í slíku. Að lokum vil ég árétta að flest fórnalömb kynferðisofbeldis lifa það af og það er svo sannarlega hægt að lifa góðu og hamingjuríku lífi þrátt fyrir slík áföll. En það gerist ekki að sjálfu sér, til þess þarf fólk að fá stuðning og hjálp, sem er til staðar ef við byggjum réttu brýrnar. Þessi grein er hluti af ÉG LOFA átaki Barnaheilla. Höfundur er varaþingmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Bergsins headspace. Fólki sem upplifir erfiðar tilfinningar er bent á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Einnig er hægt að leita til Bergsins headspace (fyrir 12-25 ára) og Píeta samtakanna, s. 552-2218. Í neyð, hringið í 112. Hægt er að leita til Stígmóta, Bjarkahlíðar, Bjarmahlíðar og Sigurhæða til að fá aðstoð við afleiðingar kynferðisofbeldis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurþóra Bergsdóttir Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar