„Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 26. apríl 2026 14:12 Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, og Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. Vilhelm/Aðsend Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í Kópavogi kepptust við að segja fullyrðingar hvors annars rangar í umræðum á Sprengisandi í dag. Tekist var á um velferðarmál, leikskólamál og ársreikning bæjarins.
Í upphafi þáttarins hrósaði Ásdís sigri yfir afrekum bæjarstjórnar á kjörtímabilinu sem hún segir meðal annars felast í ánægju bæjarbúa með snjómokstur, þjónustu gagnvart barnafjölskyldum og eldri borgurum, íþróttastarf og menningu. Hitnaði fljótt í kolum Þegar hún vatt sér að ávinningi af rekstri bæjarins í formi bættrar þjónustu og lægri fasteignagjalda gerði Jónas Már atlögu að orðinu. „Ég verð að fá að leiðrétta því hún er að segja ósatt,“ segir hann og fær þau svör frá Kristjáni þáttarstjórnanda að hann komist senn að. „Mér finnst þetta svo vondur ávani hjá Jónasi. Hann grípur alltaf fram í fyrir mér. Ég leyfi þér að tala, leyfð þú þá mér að tala,“ segir Ásdís. Jónas Már gerir aðra atlögu að orðinu meðan Ásdís vindur sér að fasteignagjöldum í Kópavogi, sem séu þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu. Jónas Már segir að ýmislegt megi gera betur í bænum og nefnir sömuleiðis málefni barna og eldri borgara. Hann segir barnafólk í Kópavogi greiða hæstu leikskólagjöld á landinu. Kópavogsbúar greiði hundruðum þúsunda meira en til dæmis Mosfellingar, þar sem Samfylkingin er í meirihluta, fyrir sambærilega leikskólaþjónustu. „Barnafólk er að flytja úr bænum og skyldi það nú vera að það sé vegna þess að það er sífellt verið að velta kostnaði yfir á þessar barnafjölskyldur?“ Segir Samfylkingu ætla að innleiða Reykjavíkurmódel Ásdís grípur inn í og segir Jónas Má boða Reykjavíkurleiðina í leikskólamálum, sem hann skýtur inn í að sé ósatt. „Það sem er verið að boða er að þá mun lokunardögum fjölga. Lokunardagar í Reykjavík hafa snert á 70% barna í Reykjavík á meðan þeir hafa ekki snert á neinum í Kópavogsmódelinu hjá okkur. Við erum líka með fullmannaða leikskóla og við erum að bjóða börnum leikskólavist frá tólf mánaða aldri. Hér er Samfylkingin að segja að við séum með hæstu leikskólagjöld á landinu. Á meðan þetta er jafnaðarmannaflokkur þá myndi ég nú halda að Samfylkingin myndi nú horfa til þess að við erum með mjög rúma afslætti,“ segir Ásdís og nefnir meðal annars að þriðjungur foreldra í Kópavogi nýti sér gjaldfrjálsa leikskólavist. Jónas Már segir sífellt reynt að draga upp þrumuskýjamynd af Reykjavíkurmódelinu en það sé ekki ætlun Samfylkingarinnar að innleiða Reykjavíkurmódelið. „Við erum í Kópavogi, við erum að reyna að takast á við áskoranirnar sem eru í Kópavogi og þar er það staðreynd að fólk borgar miklu hærri leikskólagjöld en víðast hvar annars staðar, jafnvel þar sem er verið að veita þjónustu til tólf mánaða. Við viljum bara mæta fólki þar sem það er erfiðast. Við erum að tala um 100 prósent systkinaafslátt. Það hefur ekki áhrif á mönnun,“ segir Jónas Már. Sjálfstæðisflokkur vanræki lögbundin verkefni Þá nefnir hann þjónustu við fatlaða sem einkennist af löngum biðlistum. Einungis sé verið að veita þeim þjónustu sem eru í fyrsta af þremur flokkum við mat á stuðningsþörf. „Það er verið að vanrækja hérna lögbundin verkefni af því að foreldrarnir geta bara sinnt þeim,“ segir Jónas Már en Ásdís skýtur inn í að hann hafi ekki rétt fyrir sér. „Þetta er bara nýupptekið, upp úr minnisblaði sem er bara nýbirt frá velferðarsjóði Kópavogsbæjar. Staðan er samt sem áður sú að það er ekki verið að veita sérþjónustu. Þetta er lögbundin þjónusta og ég á erfitt með að gefa stig fyrir það að hrósa sér fyrir góðan rekstur þegar lögbundin verkefni eru vanrækt,“ segir Jónas Már. Sófinn seldur til að fjármagna PlayStation Þá bendir hann á að rekstur bæjarins sé fyrst og fremst fjármagnaður af einskiptistekjum af lóðum, sem Ásdís skýtur enn og aftur inn í að sé rangt. „Það er verið að fjárfesta umfram þessar tölur. Það er verið að selja lóðir á Vatnsendanum til þess að fjárfesta fyrir hitt og þetta. Það er verið að selja sófann úr íbúðinni til þess að kaupa sér PlayStation í staðinn fyrir að kaupa í matinn eða borga reikninga. Og það er bara ekki ábyrgur rekstur. segir Jónas Már. Kristján stillti til friðar Ásdís segir dapurlegt að hlusta á orð Jónasar þegar forgangsröðunin hafi fyrst og fremst snúið að velferðarmálum á kjörtímabilinu. Hún segir bæjarstjórn hafa aukið útgjöld til velferðarmála um 36 prósent á kjörtímabilinu. „Er það mikið eða lítið? Til annarra málaflokka hefur þetta verið undir 10 prósent. Þannig að það er rangt að halda því fram að við höfum ekki sett þessi mál á oddinn,“ segir Ásdís. „Það er hægt að gera betur,“ skýtur Jónas Már inn í. „Þú getur þá rætt það við Samfylkinguna sem er við völd hér vegna þess að þessi málaflokkur er vanfjármagnaður af hálfu ríkisins,“ segir Ásdís. Þá vindur hún sér að ársreikningi bæjarins fyrir síðasta ár sem hún segir bestu afkomu Kópavogsbæjar í átján ár. Skuldir hafi sömuleiðis lækkað á kjörtímabilinu, skuldahlutfall farið úr 86% í 68 prósent. „Veistu hvernig það er gert?“ spyr Ásdís og heldur áfram: „Það er gert með því að hagræða á hverju einasta ári. Við erum búin að, ég er búin að lækka laun bæjarstjóra. Ég er búin að lækka laun bæjarfulltrúa.“ „Þetta er rangt. Þetta er lygi,“ segir Jónas Már. „Vitið þið hvað, þetta er ekki hægt,“ segir Ásdís. „Ég er búin að sameina stofnanir...“ „Hvað lækkuðu launin þín mikið, Ásdís?“ skýtur Jónas Már inn í. „Kristján, finnst þér þetta í lagi?“ segir Ásdís. „Þið verðið að sýna hvort öðru kurteisi,“ segir Kristján þáttastjórnandi. „Ég er búin að fækka pólitískum nefndum á fundum. Ég er búin að fækka stöðugildum í stjórnsýslunni. Þetta telur allt en þetta hefur ekki haft áhrif á þjónustu gagnvart bæjarbúum. Það skiptir nefnilega máli þegar verið er að standa vörð um góðan rekstur að vera ekki alltaf statt og stöðugt að auka þjónustuna, bæta í.“
Kópavogur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Leikskólar Rekstur hins opinbera Sprengisandur Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Sjá meira