Við elskum Hafnarfjörð – aukin áhersla á atvinnu og virkni Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar 24. apríl 2026 16:32 Ánægjulegt er að sjá hvað gerist þegar velferðarþjónusta er hugsuð upp á nýtt og framkvæmd af alvöru. Hjá Miðstöð vinnu og virkni í Hafnarfirði blasir árangurinn við. Þar er nú fólk í vinnu, sinnir fjölbreyttum verkefnum og eru virkir þátttakendur í samskiptum. Þarna er ekki bara verið að reka úrræði heldur skapa ný tækifæri fyrir fatlað fólk. Og það er ekki tilviljun. Við tókum ákvörðun um að gera hlutina betur Áður var starfsemi fyrir fatlað fólk í vinnu og virkni dreifð á tvo staði í Hafnarfirði og að hluta til í húsnæði sem ekki var lengur að þjóna þörfum notenda nægilega vel. Við ákváðum að gera betur. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar lagði ríka áherslu á að þessi breyting yrði að veruleika. Sem formaður fjölskylduráðs og bæjarfulltrúi hef ég fengið að fylgja þessu verkefni eftir frá upphafi. Við sameinuðum starfsemina undir einu heildstæðu yfirheiti og byggðum upp markvissari þjónustu. Starfsemin í Bæjarhrauni var lögð niður og færð í betra og hentugra húsnæði á Suðurgötu. Á Suðurgötu var byggð upp öflug aðstaða fyrir félagslega og líkamlega virkni, auk skynörvunar og tjáskipta. Atvinnu- og vinnuhlutinn var síðan sérstaklega efldur með því að færa hann í nýtt og vandað húsnæði að Selhellu þar sem möguleikar til raunverulegra vinnuverkefna eru mun betri. Þetta var stór ákvörðun. En hún skilaði árangri. Skýr uppbygging sem skilar raunverulegum árangri Í dag stendur Miðstöð vinnu og virkni á sterkum grunni með skýra og faglega uppbyggingu. Starfsemin er skipulögð í fjórar sérhæfðar deildir: Umhverfisvaktina Miðstöð félags- og líkamlegrar virkni Miðstöð skynörvunar Miðstöð óhefðbundinna tjáskipta Þessi uppbygging tryggir að þjónustan er sniðin að þörfum hvers og eins. Einstaklingurinn er ekki látinn falla inn í kerfi heldur er kerfið er byggt í kringum einstaklinginn. Fleiri tækifæri – sterkari samfélagsþátttaka Með þessum breytingum hafa tækifæri fatlaðs fólks til atvinnu og virkni aukist verulega í Hafnarfirði. Verkefnum hefur fjölgað, aðstaða batnað og tenging við raunverulegt atvinnulíf styrkst. Það þýðir að fleiri fá raunhæf tækifæri til þátttöku og fleiri geta stigið skref í átt að almennum vinnumarkaði. Þetta skiptir máli. Atvinna og virkni eru lykill að sjálfstæði, bættri líðan og aukinni þátttöku í samfélaginu. Árangur sem byggir á skýrri forystu Þessi árangur er ekki tilviljun. Hann byggir á því að taka ákvarðanir, fylgja þeim eftir og hafa kjark til að gera breytingar. Það er sú nálgun sem við í Sjálfstæðisflokknum í Hafnarfirði stöndum fyrir. Fyrir mér sem formanni fjölskylduráðs er þetta kjarni velferðarmála, þ.e að bæta þjónustu þannig að hún skili raunverulegum árangri og vellíðan í lífi fólks. Við verðum að gera kröfu um góða þjónustu. Hún þarf að vera fagleg, byggð á þekkingu og reynslu sem virkar í raun. Það er forsenda þess að fatlað fólk fái tækifæri til að taka þátt í samfélaginu á sínum forsendum og til jafns við aðra. Engin á að lenda á milli kerfa En við vitum líka að kerfið er ekki fullkomið. Alltof oft er fatlað fólk að lenda á milli ríkis og sveitarfélaga, milli ábyrgðar og milli kerfa. Það er óásættanlegt. Þess vegna munum við í Sjálfstæðisflokknum í Hafnarfirði beita okkur fyrir því að efla samtal og samvinnu milli ríkis og sveitarfélaga svo ábyrgð og fjármögnun fari saman. Við heyrum ákallið frá fötluðu fólki og munum beita okkur af fullum krafti. Það er eitt af okkar forgangsmálum að fötluðu fólki verði tryggð sú þjónusta sem það þarf á að halda sem og þann sjálfsagða rétt að lifa sjálfstæðu og innihaldsríku lífi. Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði og formaður fjölskylduráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar