Afnemum vaxtarmörk í Hafnarfirði - Byggjum fyrir fólkið Arnhildur Ásdís Kolbeins skrifar 24. apríl 2026 10:16 Eftir langan og viðvarandi skort á nýju íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði sem rekja má til tregðu bæjaryfirvalda til að viðhalda nægu lóðaframboði, var loksins í lok síðasta kjörtímabils hleypt af stað framkvæmdum við uppbyggingu á nýjum hverfum. Tvö ný hverfi, Hamranes og Ásland 4, eru nú í byggingu auk þéttingaverkefna. Um það bil 600 nýjar íbúðir bættust við í bæjarfélaginu á síðasta ári samkvæmt upplýsingum á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sem er nálægt þeirri árlegu viðbót sem nauðsynleg er talin á komandi árum sé litið til mannfjöldaspár. Hins vegar er mikið af óseldum íbúðum í nýbyggingum sem gefur til kynna að samsetning framboðsins sé ef til vill ekki að svara þörfum íbúa. Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins setur bæjarfélögum miklar skorður hvað varðar uppbyggingu nýrra svæða og er í núverandi svæðisskipulagi mikil áhersla lögð á þéttingu byggðar. Þessu verður að breyta. Hafnarfjörður hefur afar takmarkaða möguleika innan gildandi skipulags til að bæta við nýbyggingarsvæðum og staðan nú er sú að byggingarhæft land innan gildandi vaxtarmarka er nánast uppurið og því fyrirséð að bærinn mun í framtíðinni ekki geta staðið undir frekari fjölgun nema með afnámi vaxtarmarka eða verulegri aukningu þéttingar byggðar. Þetta endurspeglast í gildandi húsnæðisáætlun Hafnarfjarðar þar sem áætlað er að meginþorri nýrra bygginga á næstu árum rísi á þéttingarreitum, aðallega á hafnarsvæðinu og Hraun-Vestur. Á þessum þéttingarreitum verður eingöngu um fjölbýlishús að ræða og bílastæðamöguleikar mjög takmarkaðir. Ljóst er að mögulegt byggingamagn á þéttingarreitum verður alltaf takmarkað og því ekki langtímalausn, auk þess sem standa þarf vörð um grænu svæðin í bænum. Mun dýrara er að byggja þéttingarreiti heldur en ný óbyggð svæði og hentar húsnæði á slíkum svæðum því ekki efnaminni fjölskyldum eða fyrstu kaupendum. Uppbygging á þéttingarreitum er umdeild meðal íbúa og sýnir ný búsetukönnun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar að mikill meirihluti Hafnfirðinga er andvígur þéttingu byggðar í nærumhverfi sínu. Mikilvægt er að fjölbreytt framboð húsnæðis sé fyrir hendi og að framtíðaruppbygging íbúðarhúsnæðis samræmist þörfum og óskum íbúa. Núverandi áhersla á þéttingarreiti og hverfi með þéttri byggð stórra fjölbýlishúsa, eins og nú rís í Hamraneshverfinu er einfaldlega ekki það sem íbúar óska almennt eftir. Þarfirnar eru mismunandi þar sem ólík íbúðaform henta ólíkum einstaklingum og fjölskyldum. Húsnæðisframboð þarf að endurspegla þessar ólíku þarfir. Miðflokkurinn í Hafnarfirði vill afnema vaxtamörk í svæðisskipulagi og uppfæra húsnæðisáætlun bæjarins. Við leggjum áherslu á að bærinn haldi einkennum sínum með blöndu af smærri fjölbýlum og sérbýlum, þar sem gert er ráð fyrir að lágmarki tveimur bílastæðum fyrir hverja íbúð. Tækifærið til breytinga er núna. Höfundur skipar 5. sæti á framboðslista Miðflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar