Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Eiður Þór Árnason og Smári Jökull Jónsson skrifa 16. apríl 2026 20:51 Snjólaug Árnadóttir, dósent í þjóðarrétti við Háskólann í Reykjavík. Vísir/Smári Stjórnvöld geta verið að brjóta gegn alþjóðlegum skuldbindingum sínum með því að leyfa hvalveiðar, að mati lögfræðinga. Bjarni Benediktsson, þáverandi forsætis- og matvælaráðherra, gaf út hvalveiðileyfi til fimm ára skömmu eftir kosningarnar 2024. Á sama tíma hefur Hafrannsóknastofnun ekki gefið út hvalveiðikvóta fyrir komandi hvalveiðitímabil.
Snjólaug Árnadóttir, dósent í þjóðarrétti við Háskólann í Reykjavík, segir að samkvæmt Hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland hafi skuldbindingar gagnvart, verði stjórnvöld að sinna samstarfi um verndun, stjórnun og rannsóknir á hvölum. „Það er ekki í rauninni útlit fyrir að við séum að gera það ef við erum ekki að fylgja öllum þessum tilmælum Alþjóðahvalveiðiráðsins og erum ekki með raunverulegt samráð. Það er ekki endilega skyldugt að fylgja öllum ráðstöfunum sem þau ákveða en við þurfum að vera í raunverulegu samráði og bera þá undir þau kvótann og svo framvegis. [Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðið] NAMMCO er ekki slíkt ráð.“ Þetta var á meðal þess sem rætt var á málþingi um hvalveiðar í Norræna húsinu í dag sem var á vegum Dýraverndarsambands Íslands, Náttúruverndarsamtaka Íslands og Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík. Fyrirvari Íslands líklega ólögmætur Snjólaug segir að íslensk stjórnvöld hafi gefið út leyfi til hvalveiða í atvinnuskyni á grundvelli fyrirvara sem þau hafi sett við áðurnefndan samning Sameinuðu þjóðanna. „Hann er að öllum líkindum ólögmætur vegna þess að tilgangur og markmið samningsins hafa breyst og það á að horfa til þess að þetta er lifandi samningur. Það er alþjóðleg dómaframkvæmd Alþjóðadómstólsins í Haag sem staðfestir að það á að horfa til þessarar verndunarstefnu sem hefur þróast í áranna rás hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu þegar við túlkum samninginn. Þannig að þá er líklegt að hann sé ógildur og þá erum við að fullu leyti bundin og hvert einasta leyfi sem við gefum út er brot á þjóðarrétti,“ segir Snjólaug. Því til viðbótar beri Íslandi skylda til að vernda hætt komnar tegundir og viðkvæm vistkerfi undir hafréttarsamningnum. „Þá erum við líka að brjóta hafréttarsamninginn ef við gerum það ekki og öll stórhveli eru hluti þessara tegunda.“ Evrópusambandið setji sig upp á móti hvalveiðum Aðspurð um áhrif mögulegrar inngöngu Íslands í Evrópusambandið á hvalveiðar segir Snjólaug að sambandið banni slíkar veiðar. „Þetta er ekki inni í fiskveiðistefnunni. Þetta er önnur löggjöf sem kveður á um vernd viðkvæmra tegunda, þannig að það fellur undir það.“ Þrátt fyrir þetta megi velta því upp hvort hægt yrði að fara fram á undanþágur frá þessu í aðildarviðræðum. „En það er alveg ljóst að meginstefnan hjá Evrópusambandinu er að banna hvalveiðar. Þá eru allar líkur á því að við þyrftum að uppfylla þau skilyrði líka.“
Hvalveiðar Utanríkismál Tengdar fréttir Taldi sig vanhæfan í að afgreiða umsókn Hvals hf. Bjarni Bendiktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, ætlaði að víkja sem matvælaráðherra í starfsstjórn þar sem hann taldi sig vanhæfan til að afgreiða umsókn Hvals hf. um veiðileyfi. Hann skipti hins vegar um skoðun tveimur vikum síðar. 8. apríl 2025 21:49 Veitir leyfi til veiða á langreyði og hrefnu Bjarni Benediktsson matvælaráðherra hefur gefið út leyfi til veiða á langreyðum til Hvals hf. auk leyfis til veiða á hrefnu til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14 sem er í eigu Tjaldtanga ehf.. Leyfin eru veitt til fimm ára. 5. desember 2024 15:29 Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Sjá meira
Taldi sig vanhæfan í að afgreiða umsókn Hvals hf. Bjarni Bendiktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, ætlaði að víkja sem matvælaráðherra í starfsstjórn þar sem hann taldi sig vanhæfan til að afgreiða umsókn Hvals hf. um veiðileyfi. Hann skipti hins vegar um skoðun tveimur vikum síðar. 8. apríl 2025 21:49
Veitir leyfi til veiða á langreyði og hrefnu Bjarni Benediktsson matvælaráðherra hefur gefið út leyfi til veiða á langreyðum til Hvals hf. auk leyfis til veiða á hrefnu til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14 sem er í eigu Tjaldtanga ehf.. Leyfin eru veitt til fimm ára. 5. desember 2024 15:29