MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Agnar Már Másson skrifar 16. apríl 2026 17:00 Inga Sæland er barna- og menntamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnakerfi grunnskólanna. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sagði á menntaþingi í gær að skólar ættu aftur að taka upp tölustafakerfi. Slíkar breytingar krefðust breytinga á aðalnámskrá.
Inga sagði á kennaraþingi í gær að nota ætti tölustafi í einkunnagjöf í grunnskólum en ekki bókstafi eða önnur form eins og tíðkast í dag. Þetta kom flatt upp á kennara og formaður Kennarasambandsins lýsti reiði vegna málsins í samtali við Vísi í gær. Óskýrt er hvort Inga hafi með þessu verið að boða breytingar á sjálfu kerfinu en samkvæmt svörum frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur stofnunin engar slíkar breytingar á sínu borði. Í svörum MMS við fyrirspurn Vísis segir að stofnuninni sé ekki kunnugt um nánari útfærslu á fyrirhuguðum breytingum umfram það sem fram kom í ræðu ráðherra, þ.e. að nefnt hafi verið að taka ætti út bókstafi í tengslum við mat/einkunnagjöf og setja tölustafi í staðinn. Stofnuninni hafi enn fremur ekki verið falið að útfæra eða innleiða einhverjar breytingar á einkunnagjöf í grunnskólum. Í svari MMS segir einnig að breytingar á einkunnakvarða þyrfti að útfæra í gegnum aðalnámskrá. „Slíkar breytingar myndu kalla á endurskoðun á þeim köflum aðalnámskrár sem fjalla um námsmat og matskvarða, ásamt viðeigandi samræmingu innan greinasviða og í samhengi við heildarsýn og markmið aðalnámskrár,“ segir í svari MMS.
Grunnskólar Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Innlent Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira