Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon, Kristján Vigfússon og Margrét Manda Jónsdóttir skrifa 15. apríl 2026 12:00 Reynslumikill og farsæll strætóbílstjóri, á síðasta degi sínum í starfi fyrir starfslok, ákvað að kveðja heimabæ sinn með óhefðbundnum hætti. Í síðustu ferð sinni keyrði hann strætisvagn fullan af farþegum í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla á um 150 km hraða. Vitni lýsa því að bíllinn hafi brunað framhjá leiksvæðum og gangstéttum þar sem börn voru á ferð, með tilheyrandi ótta meðal íbúa. Á samfélagsmiðlum hrósa þó áhugamenn um akstur „tilkomumikilli kveðju“, á meðan íbúar eru sakaðir um óþarfa neikvæðni og viðkvæmni. Málið er nú til skoðunar hjá yfirvöldum. Ef fréttir bæru þessa yfirskrift myndi enginn efast um að kerfið hefði brugðist. Brotlending íslenskrar flugstjórnsýslu Lágflug farþegaþotu yfir Vestmannaeyjum var ekki bara óviðeigandi atvik. Það var skýrt dæmi um kerfisbrest í íslenskri flugstjórnsýslu og afhjúpaði enn og aftur alvarlegt stjórnleysi í flugmálum. Nú liggur fyrir að flugfélagið veitti ekki leyfi fyrir fluginu og að málið hefur verið kært til lögreglu. Engu að síður fékk flugmaðurinn samþykki flugumferðarstjórnar til að breyta flugleið yfir þéttbýli. Þar með fékk einn einstaklingur að nota loftrými yfir heimilum fólks í eigin þágu, án sýnilegs áhættumats fyrir íbúa á jörðu niðri. Ekkert eftirlit – fyrr en eftir á Atvikið í Vestmannaeyjum sýnir að eftirlit með flugi yfir byggð er veikburða. Ákvarðanir virðast teknar á grundvelli trausts, tengsla og hefða fremur en skýrrar ábyrgðar, ferla og virks eftirlits. Einn einstaklingur óskar eftir að fljúga lágt yfir heimili fólks. Engin krafa er gerð um formlegt áhættumat fyrir íbúa á jörðu niðri. Ekki liggur fyrir staðfesting á samþykki vinnuveitanda. Samt er beiðnin samþykkt. Hvar eru ferlarnir?Hver ber ábyrgð?Hver átti að stoppa þetta og af hverju gerðist það ekki? Færa má rök fyrir því að flugumferðarstjórar beri sambærilega ábyrgð og skurðlæknar í bráðaaðgerðum. Engum dytti í hug að sætta sig við að skurðlæknir horfði á úrslitaleik Liverpool í miðri aðgerð, treysti á reynslu sína og „tilfinningu fyrir aðstæðum“ og vísaði gagnrýni á bug sem óþarfa neikvæðni. Samt liggur fyrir að flugumferðarstjórar horfðu á úrslitaleik Liverpool í flugturni á vakt, á sama tíma og lá við árekstri tveggja flugvéla yfir þéttbýli. Og enn og aftur voru viðbrögðin fyrst eftir á, þegar hættan var liðin hjá. Ef kerfið er þannig uppbyggt að það treystir mati eins einstaklings þegar þúsundir íbúa eru undir, án virkra ferla og ábyrgðarkeðju, þá er það einfaldlega ekki starfhæft. Leikvöllur flugmanna á kostnað öryggis og heilsu íbúa Atvikið í Vestmannaeyjum er ekki einsdæmi. Undanfarin ár hafa ítrekað komið upp dæmi þar sem stórum flugvélum er flogið lágt yfir byggð að nauðsynjalausu. Þar hefur verið vísað til hefða, fagnaðar eða þess að „öll leyfi hafi fengist“, á meðan upplifun íbúa á jörðu niðri hefur verið ótti og óvissa. Fyrir íbúa Vestmannaeyja var lágflugið ekki „skemmtilegt sjónarspil“. Hús nötruðu og margir óttuðust slys. Sama átti við þegar breiðþotu var flogið lágt yfir höfuðborgarsvæðið í þeim eina tilgangi að fagna kaupum á nýrri vél. Slíku má líkja við að slökkviliðið fagnaði kaupum á nýjum bíl með því að aka á bláum ljósum með sírenurnar vælandi í gegnum íbúðarhverfi, ekki vegna eldsvoða, heldur til að fagna. Gjörningurinn myndi valda ótta og streitu hjá íbúum og enginn myndi gera lítið úr slíkum viðbrögðum. Sambærileg atvik í loftinu eru hins vegar afgreidd sem viðkvæmni eða misskilningur og fagnaður fluggeirans fær að ganga fyrir. Kært til lögreglu – en hvað breytist? Að málið sé til rannsóknar hjá lögreglu er nauðsynlegt. En það dugar ekki eitt og sér. Spurningin er einföld: Hvað þarf að breytast svo þessi atvik haldi ekki áfram að endurtaka sig? Efla þarf formlegt, sjálfstætt eftirlit með flugi yfir byggð og setja skýrar skorður við óþarfa flugi. Núverandi fyrirkomulag, þar sem flugrekstraraðilar sitja í flestum ráðum og nefndum á vegum Innviðaráðuneytisins og taka sjálfir þátt í að móta leikreglurnar, stenst ekki kröfur um gagnsæi og forvarnir. Þetta er spurning um öryggi íbúa. Fyrir hönd samtakanna HljóðmörkHaukur Magnússon, Kristján Vigfússon og Margrét Manda Jónsdóttir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fréttir af flugi Lágflug Icelandair yfir Vestmannaeyjum Reykjavíkurflugvöllur Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar