Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Eiður Þór Árnason skrifar 13. apríl 2026 19:26 Hafnaraðstaða Eimskips við Sundahöfn í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Héraðssaksóknari hefur ákært félögin Eimskipafélag Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf. vegna sölu á tveimur skipum sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara árið 2020. Skipaflutningafélagið var kært vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs.
Héraðssaksóknari fer fram á að félögin verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Á sama tíma hefur embættið fellt niður rannsókn á Hilmari Pétri Valgarðssyni, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Eimskips, í tengslum við sama mál. Þetta kemur fram í tilkynningu Eimskips til Kauphallar og er félagið sagt hafa fengið upplýsingar um þetta í dag. Hilmar hafi því ekki lengur réttarstöðu sakbornings. Lýsa yfir sakleysi Stjórnendur Eimskips telja félagið hafa fylgt lögum og reglum við sölu skipanna. Fullyrt er að þau hafi verið seld til áframhaldandi rekstrar en ekki til endurvinnslu. Málið má rekja til sölu skipanna Laxfoss og Goðafoss. Umhverfisstofnun kærði Eimskip eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði um örlög skipanna eftir að þau voru seld. Þar kom fram að skipin hafi endað í skipaendurvinnslustöðvum á Indlandi við einn stærsta skipakirkjugarð heims. Í umfjöllun Kveiks hélt forsvarmaður Shipbreaking Foundation, samtaka sem berjast fyrir því að tryggt sé að skipum sé fargað á öruggan og umhverfisvænan hátt, því fram að Eimskip hefði brotið evrópska úrgangslöggjöf þegar skipin voru seld til fyrirtækis að nafni GMS. Eimskip baðst í kjölfarið afsökunar á því að hafa ekki gert „ríkari kröfur“ til kaupanda skipanna tveggja. Fréttin hefur verið uppfærð.
Eimskip Sala Eimskips á Laxfossi og Goðafossi Dómsmál Umhverfismál Skipaflutningar Tengdar fréttir Hefðu mátt gera „ríkari kröfur“ til kaupanda skipanna Eimskip biðst afsökunar á því að ekki hafi verið gerðar „ríkari kröfur“ til kaupenda tveggja skipa félagsins 30. september 2020 09:38 Gerðu húsleit vegna rannsóknar á sölu tveggja skipa Eimskips Embætti héraðssaksóknara gerði í dag húsleit á aðalskrifstofu Eimskipafélagsins. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaskóknari í samtali við Vísi. Embættið fékk úrskurð til húsleitar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og óskaði eftir afmörkuðum gögnum vegna sölu skipanna Goðafoss og Laxfoss á árinu 2019 sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara 2020. 16. desember 2021 14:13 Eimskip staðfestir kæru en hafnar ásökunum Umhverfisstofnun hefur kært Eimskip til embætti Héraðssaksóknara vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs. Félagið hafnar ásökunum um að hafa brotið lög við sölu á skipunum Goðafossi og Laxfossi. 25. september 2020 13:42 Mest lesið Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Sjá meira
Hefðu mátt gera „ríkari kröfur“ til kaupanda skipanna Eimskip biðst afsökunar á því að ekki hafi verið gerðar „ríkari kröfur“ til kaupenda tveggja skipa félagsins 30. september 2020 09:38
Gerðu húsleit vegna rannsóknar á sölu tveggja skipa Eimskips Embætti héraðssaksóknara gerði í dag húsleit á aðalskrifstofu Eimskipafélagsins. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaskóknari í samtali við Vísi. Embættið fékk úrskurð til húsleitar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og óskaði eftir afmörkuðum gögnum vegna sölu skipanna Goðafoss og Laxfoss á árinu 2019 sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara 2020. 16. desember 2021 14:13
Eimskip staðfestir kæru en hafnar ásökunum Umhverfisstofnun hefur kært Eimskip til embætti Héraðssaksóknara vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs. Félagið hafnar ásökunum um að hafa brotið lög við sölu á skipunum Goðafossi og Laxfossi. 25. september 2020 13:42