Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason, Hrafn Loftsson, Stefán Ólafsson, Kristinn R. Þórisson, Hannes Högni Vilhjálmsson og Henning Arnór Úlfarsson skrifa 13. apríl 2026 15:32 Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Logi Einarsson, skrifaði um sjálfstæðisbaráttu nútímans í nýlegri grein á Vísi. Við fögnum því hversu mikla athygli málefni gervigreindar og íslensku fá hjá ráðherra og tökum undir þá áherslu sem kemur fram í greininni um að íslenska ríkið þurfi að tryggja öfluga innviði fyrir gervigreind og byggja upp sérfræðikunnáttu sem getur haldið tækninni við og þróað nýjar lausnir. Í ljósi djúprar þekkingar íslenskra vísindamanna á gervigreind og beitingu slíkrar tækni fyrir íslenskt mál kemur það okkur hins vegar verulega á óvart að ráðherra segi samræður hafnar við erlent fyrirtæki um þróun íslensks mállíkans „á heimsmælikvarða”. Árið 2018 var hópurinn "Samstarf um íslenska máltækni" (SíM) stofnaður. SÍM er hópur íslenskra háskóla, stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka sem vann að rannsóknum og þróun innan máltækniáætlunar stjórnvalda, „Máltækni fyrir íslensku 2019-2023”, og framhaldi hennar. Í þessari áætlun voru margvísleg mállíkön þróuð frá grunni sem geta t.d. greint íslenskan texta í orðflokka og beygingarlegar myndir, borið kennsl á nöfn, þýtt texta úr íslensku í ensku, svarað spurningum, varpað íslensku tali yfir í texta og myndað íslenskt tal úr texta. Það mállíkan sem ráðherra vísar til í sinni grein er vissulega af annarri stærðargráðu en þau sem þróuð hafa verið hér á landi hingað til. Þróun slíkra líkana er hins vegar í beinu framhaldi af þeirri vinnu sem þegar hefur farið fram — sömu undirstöður, sömu aðferðir og að stórum hluta sömu sérfræðingar koma að henni. Næstu skref í þróun íslenskra mállíkana eru því best komin í höndum þeirra sem byggt hafa þennan grunn. Höfundar þessarar greinar starfa flestir við Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík (CADIA), sem var stofnað fyrir rúmlega tveimur áratugum og hefur stundað rannsóknir á sviði gervigreindar alla tíð síðan, í máltækni og tengdum greinum. Rannsóknarhópar setursins hafa unnið að þróun íslenskrar máltækni og mállíkana og ýmsum öðrum verkefnum sem tengjast beint þeirri tækni sem hér um ræðir, jafnframt því að leggja grunn að næstu kynslóðum – og tegundum – gervigreindartækni. Þegar ráðherra talar um að tryggja sérfræðikunnáttu í gervigreind á Íslandi er rétt að hafa í huga að slík sérfræðiþekking er þegar til staðar — og hefur verið í uppbyggingu í rúma tvo áratugi. Það veldur okkur verulegum vonbrigðum að ekki hafi verið rætt við Gervigreindarsetur HR um undirbúning að gerð þess íslenska mállíkans sem ráðherra nefnir. Þróun íslensks mállíkans og gervigreindar fyrir máltækni er að sjálfsögðu ekki lokið, enda í mörg horn að líta, heldur þvert á móti er hún rétt að byrja. Hér má m.a. nefna að beygingarkerfi íslenskunnar kallar á mikið magn þjálfunargagna til að þróa gott mállíkan með núverandi tækni, en vegna fámennis er framboð þjálfunargagna lítið í samanburði við mörg önnur tungumál. Því er ekki endilega hægt að nota sömu nálgun og fyrir tungumál með stærra gagnamengi. Þótt nýlegar rannsóknir hafi dregið úr vægi þessara hindrana gæti verið erfitt að ná sambærilegum árangri án sértækra nálgana. Að auki hafa mállíkön þróuð af erlendum aðilum ekki ratað í hendur íslenskra málhafa í eins miklum mæli og æskilegt væri — og þar skiptir nýsköpun á sviðinu miklu máli. Því færi betur á því að ráðuneytið og aðrar stofnanir ríkisins einbeittu sér að því að byggja upp og styrkja innlendar rannsóknir og þróun og hagnýta þekkingu og þjónustu sem þegar er í boði á íslenska markaðnum. Þá ættu þær jafnframt að leggja áherslu á opin notkunarleyfi í stað lokaðra lausna einkafyrirtækja. Áform ráðherra um að borga erlendu stórfyrirtæki fyrir smíði íslensks mállíkans vekja hjá okkur alvarlegar áhyggjur, og það af fjórum ástæðum. Í fyrsta lagi situr stór hluti ákvarðanavalds og þekkingar varðandi tæknina óhjákvæmilega föst erlendis, á fleiri en einn hátt. Ef erlent fyrirtæki smíðar líkanið verður Ísland háð þeim aðila í viðhaldi, uppfærslu og aðlögun þess. Þegar næsta kynslóð mállíkana kemur — og það gerist á nokkurra mánaða fresti — erum við aftur á byrjunarreit. Í öðru lagi er spurning um leyfi og eignarhald. Ef niðurstaðan er lokað líkan undir sérlokun erlends fyrirtækis hefur Ísland ekki raunverulegt vald yfir tækninni. Opin leyfi eru forsenda þess að hægt sé að fínstilla, endurþjálfa og dreifa líkaninu án sérstaks leyfis. Í þriðja lagi er innlend sérfræðiþekking þegar til staðar eins og bent hefur verið hér á að ofan, meðal annars rannsóknarhópar innan SÍM, þ.m.t. innan HR, HÍ, Vitvélastofnunar Íslands og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Þá hafa íslensk máltæknifyrirtæki unnið að þróun mállíkana undanfarin ár. Að sneiða framhjá þessari þekkingu og kaupa beint frá erlendum aðila er ekki aðeins sóun á almannafé — heldur grefur beinlínis undan þeirri innlendu getu sem ráðherra segist vilja efla. Í fjórða lagi er þetta í hreinni mótsögn við markmiðin sem ráðherra setur fram í eigin grein. Stafrænt fullveldi felst ekki í því að kaupa fullbúna lausn heldur í því að búa yfir þekkingu og getu til að þróa og viðhalda tækninni sjálf. Alþjóðlegt samstarf skiptir að sjálfsögðu máli — og slíkt samstarf er þegar í fullum gangi, meðal annars í gegnum Nordic AI Partnership, New Nordics AI og Nordic AI Hub þar sem íslenskir rannsakendur og stofnanir geta unnið með norrænum samstarfsaðilum að opinni máltækni og gervigreind. Þá höfum við aðgang að evrópsku reikniafli í gegnum samstarf á borð við EuroHPC og AI Factory Antenna og ríkisstjórnin hefur gert vel í því að rækta alþjóðatengsl grasrótarinnar við erlenda samstarfsaðila. Leiðin til raunverulegs stafræns fullveldis liggur ekki í gegnum útvistunarsamning við eitt erlent fyrirtæki heldur í því að efla innlenda getu í krafti þess alþjóðlega samstarfs sem þegar er til staðar. Þannig yrði þekkingin til á Íslandi, líkönin yrðu opin og endurnýtanleg, og landið myndi öðlast raunverulega getu til að halda í við þá öru þróun sem á sér stað í gervigreind. Það er sjálfstæðisbarátta nútímans. Við skorum á ráðherra að endurskoða þessi áform og beina fjármagninu þangað sem það skilar mestum árangri: til innlendra rannsóknarhópa og fyrirtækja sem vinna að opnum grunnlíkönum og þróa gervigreindarlausnir undir opnum hugbúnaðarleyfum. Jón Guðnason, prófessor við Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík Hrafn Loftsson, dósent við Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík Stefán Ólafsson, lektor við Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík Kristinn R. Þórisson, prófessor við Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík Hannes Högni Vilhjálmsson, prófessor við Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík Henning Arnór Úlfarsson, deildarforseti Tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Máltækni Íslensk tunga Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar