Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson og Hlynur Áskelsson skrifa 7. apríl 2026 08:30 Sundlaugar Reykjavíkurborgar hafa lengi verið eitt helsta stolt og sameiningartákn borgarinnar. Þær eru ekki eingöngu íþrótta- og heilsuræktarmannvirki, heldur líka félagslegur vettvangur og griðastaður þar sem fólk á öllum aldri hittist daglega. Árið 2024 var sundlaugamenning á Íslandi tilnefnd á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns. Þess vegna er það bæði sláandi og miður þegar sífellt fleiri upplifa að ástandið í sundlaugum borgarinnar fari stöðugt versnandi. Vandinn er ekki einn og afmarkaður heldur margháttaður. Hann snýst um viðhald, hreinlæti, eftirlit og þjónustu, sem fer hrakandi. Viðhaldi ábótavant – sóðaskapur algengur Víða má sjá merki þess að viðhald sundlauga Reykjavíkur sé vanrækt og þær viljandi látnar grotna niður. Mörg mannvirki eru illa farin af steypuskemmdum, leka, flísar sprungnar og skítugar, búningsklefar slitnir, skápar og læsingar bilaðar, sápudælur í ólagi og almennt yfirbragð víða dapurlegt. Í Laugardalslaug er heitur pottur búinn að vera lokaður mánuðum saman vegna skemmda og þess á milli er öðrum pottum lokað reglulega vegna bilana. Þetta er ekki sá bragur sem á að ríkja þar sem heilsuefling er í forgrunni auk þess sem þetta er hrein vanvirðing við gesti og sjálfa Reykjavíkurborg sem á og rekur þessar laugar. Samhliða skorti á viðhaldi hefur borið á auknum sóðaskap, bæði í búningsklefum, laugarbökkum sem og laugunum sjálfum. Þegar hreinlæti er ábótavant sendir það röng skilaboð um að reglur skipti ekki máli, virðing fyrir verðmætum minnkar og líkur á reglubrotum aukast. Reglum ekki framfylgt Ein mikilvægasta regla í íslenskum sundlaugum er sú að gestir þvoi sér vandlega og án sundfata áður en farið er ofan í laug. Þessi regla er grundvöllur alls hreinlætis í sundlaugum. Í dag er þessi einfalda regla oft hunsuð og það án afleiðinga. Eftirlit í búnings- og sturtuklefum er lítið og oft getur liðið langur tími þangað til starfsmenn sjást á svæðinu. Þegar þeir eru á staðnum er ekki óalgengt þeir horfi í gegnum fingur sér þegar fyrrnefndar reglur eru brotnar. Þetta er eitthvað sem ber að bæta og starfsmenn þurfa að hafa skýrar heimildir og stuðning sinna yfirmanna til að framfylgja reglum sundlauganna. Þessi skortur á eftirliti gerir það að verkum að einstaklingar og heilu hóparnir fara oft óbaðaðir út á laugarsvæðið. Einnig hefur mikil aukning orðið á því að gestir, oftast karlmenn, fara í skítugum nærfötum út í laug, sem er stranglega bannað og algerlega andstætt reglum um hreinlæti og hollustuhætti. Í vaxandi mæli eru karlmenn að leika þann leik að fara í stuttbuxur yfir þær nærbuxur sem þeir eru klæddi í og fara þannig búnir út í laug. Það er ekki nóg að hengja upp skilti í búningsklefum, það þarf eftirlit, mönnun og reglufestu. Ef gestir vilja af einhverjum ástæðum ekki baða sig í almenningslaug verða þeir að snúa sér annað. Það eru ekki mannréttindi að brjóta reglur í sundlaugum frekar en í umferðinni eða á öðrum stöðum í samfélaginu. Sóðaskapur er bein ógn við hreinlæti og heilsu. Meiri klór, verri upplifun Þegar reglum um hreinlæti í sundlaugum er ekki framfylgt verður afleiðingin sú að auka þarf klórmagn í laugum og pottum til að halda bakteríum niðri. Þetta bitnar á öllum, vatnsgæði versna, húð og öndunarfæri verða fyrir ertingu og upplifun gesta verður verri. Það er algjörlega óviðunnandi að gestir sem fylgja reglum þurfi að líða fyrir skort á eftirliti. Borgin rekur heila stofnun sem heitir Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur sem mætti vera mun sýnilegri í sturtuklefum sundlauganna. Styttur opnunartími – minni þjónusta Annað sem veldur mikilli óánægju laugargesta er að opnunartími yfir hátíðir hefur verið styttur frá því sem áður var. Þetta er bagalegt fyrir alla og ekki til sóma fyrir Reykjavíkurborg. Sundlaugar eiga að vera aðgengilegar, sérstaklega á tímum þegar fólk á frí og vill nýta þær sem mest. Starfsfólk grætur það heldur ekki að fá nokkra aukatíma í yfirvinnu. Afturför – engin viðbrögð Upptalning ofangreindra atriða dregur upp þá mynd að rekstur og umsjón sundlauga Reykjavíkur sé illa sinnt og látin reka á reiðanum. Vandamálin eru ekki ný af nálinni og þau leynast engum. Þau virðast hins vegar ekki fá forgang innan borgarkerfisins. Sundlaugar Reykjavíkur eiga að vera stolt borgarinnar en ekki illa sinnt hliðarverkefni. Þær eiga að standa fyrir hreinlæti, öryggi, gæði og heilsueflingu. Reykjavíkurborg getur gert mun betur en hún gerir núna og sú breyting þarf að gerast hratt áður en sundlaugarnar drabbast enn meira niður en þær hafa nú þegar gert. Það er löngu tímabært að Reykjavíkurborg axli ábyrgð og snúi þessari þróun við. Stefna Okkar Borgar er skýr Sundlaugum borgarinnar skal vel viðhaldið og þær reknar með sóma Reglum um hreinlæti og hollustuhætti í sundlaugum skal framfylgt í hvívetna Höfundar eru frambjóðendur Okkar Borgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar