„Þetta hlýtur að verða metdagur“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 3. apríl 2026 14:16 Myndin er úr safni. Vísir Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í Hlíðarfjall á Akureyri í dag. Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður skíðasvæðisins telur líklegt að um metdag sé að ræða. „
Ég er ekki með tölu á hvað þetta eru margir, við tökum það saman í lok dags. En þetta hlýtur að vera metdagur,“ segir Brynjar í samtali við fréttastofu. Fréttastofa hefur fengið ábendingar um að löng bílaröð hafi myndast við skíðasvæðið og bílastæðin verið fljót að fyllast. Við slíkar aðstæður leggur fólk meðfram veginum en þarf þá að ganga dálítinn spotta að lyftunum, að sögn Brynjars. Hann segir til skoðunar að endurvekja rútuferðir frá Hótel Hálöndum, sem er á Hlíðarfjallsvegi, að fjallinu. Þannig væri hægt að leggja hjá hótelinu og fá far alveg að svæðinu í stað þess að þurfa að leggja úti í vegkanti. „Það er búið að vera alveg yndislegt í dag. Það kom trúbador og plötusnúður og veðrið er búið að vera mjög þægilegt,“ segir Brynjar. Þétt dagskrá er í Hlíðarfjalli um helgina en óhætt er að segja að skíðasvæðið sé ákveðinn brautryðjandi í apres-ski menningu hérlendis. Á morgun treður hljómsveitin Alles okei upp á skíðasvæðinu og plötusnúður þeytir skífum. Á páskadag verður sömuleiðis boðið upp á tónlistardagskrá. Áfengissala hefur verið leyfð á skíðasvæðinu í nokkur ár og Brynjar hefur sagt söluna hafa reynst einkar vel.
Skíðasvæði Akureyri Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira