Neitar að hafa myrt mann á Kársnesi Árni Sæberg skrifar 30. mars 2026 10:16 Maðurinn fannst látinn í íbúð að Skjólbraut. Vísir/Vilhelm Grískur karlmaður á fertugsaldri, sem ákærður hefur verið fyrir að stinga annan mann til bana í íbúð við Skjólbraut í Kópavogi í nóvember, neitar sök í málinu.
Ríkisútvarpið greinir frá þessu en þingfesting máls ákæruvaldsins á hendur manninum fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Maðurinn hefur hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan 10. desember í tengslum við rannsókn lögreglu á mannsláti við Skjólbraut í Kópavogi þann 30. nóvember. Maðurinn var handtekinn nokkrum dögum eftir andlátið en sleppt úr haldi eftir nokkurra daga gæsluvarðhald. Degi eftir að honum var sleppt var hann handtekinn á ný og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Ákæra á hendur honum var gefin út í síðustu viku. Líkt og Vísir fjallaði um fyrir helgi kemur fram í nýlegum gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manninum að lögregla telji framburð hans ótrúverðugan en rökstuddur grunur sé um að hann hafi veitt hinum látna áverka sem leiddu til dauða hans. Blóðug skóför og DNA hins grunaða á hnífum sem fundust á vettvangi auk lokaniðurstöðu krufningar séu meðal gagna sem benda til sektar mannsins. Í frétt Ríkisútvarpsins segir að málið verði næst tekið fyrir þann 16. apríl. Til standi að aðalmeðferð í málinu hefjist 6. maí og henni verði framhaldið föstudaginn 8. maí.
Dularfullt mannslát við Skjólbraut í Kópavogi Kópavogur Lögreglumál Dómsmál Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Sjá meira