Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 29. mars 2026 20:42 Það gæti orðið allpínleg upplifun að skila bílaleigubílunum. Freysnes Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa um verslunina Freysnes í Öræfum í morgun. Um skipulagðan þjófnað var að ræða enda voru þeir allt að tíu talsins og gengu hringi um verslunina og stungu vörum í vasana.
Anna María Ragnarsdóttir eigandi Hótels Skaftafells og söluskálans Freysness vakti athygli á þessu á samfélagsmiðlum. Þar varar hún aðra rekstraraðila við þjóðveginn við hópnum sem ferðast í samfloti á húsbílum. Adam, kokkur á skálanum, segist hafa orðið var við grunsamlega hegðun hópsins í morgun. Frekari stoðum var rennt undir þann grun þegar annar hópur af ferðamönnum sem verslaði í Freysnesi sagði að verið væri að stinga hlutum í vasana. Bróðurpartur þess sem stolið var segir Adam hafa verið nammi og drykkir en einnig hafði hópurinn með sér derhúfur fyrir fjögur þúsund krónur. „Þeir hröðuðu sér þá um borð í bílana og óku á brott. En þegar við gáðum á upptökuna úr öryggismyndavélinni sáum við þá ganga hringi um búðina endalaust og stinga einhverju í vasann í hverjum hring,“ segir hann. Hann segir starfsfólkið á Freysnesi hafa haft samband við húsbílaleigufyrirtækið sem skráð var fyrir bílum ferðamannanna óprúttnu og leituðu sömuleiðis til lögreglu. Adam segir starfsmann bílaleigunnar hafa sagt að hópurinn hefði haft hringferð í hyggju þannig að ólíklega bólar á þeim fyrr en eftir nokkra daga.
Lögreglumál Sveitarfélagið Hornafjörður Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Sjá meira