Foreldrar segja lögreglu gera lítið úr meintu kynferðisbroti á barni sínu á leikskólaaldri Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 27. mars 2026 18:28 Leikskólinn Tröllaborgir er í Giljahverfinu á Akureyri. Akureyrarbær Foreldrar gera alvarlegar athugasemdir við opinbera umfjöllun lögreglu um mál er varðar meint kynferðisbrot starfsmanns leikskólans Tröllaborga á Akureyri á barni sínu.
Í yfirlýsingu sem lögmaður þeirra gaf út fyrir þeirra hönd segja þau með öllu óásættanlegt að lögreglan leyfi sér að fjalla um jafnviðkvæmt mál og rannsókn á ætluðu kynferðisbroti gegn barni á leikskóla með þeim hætti sem raun ber vitni. Málið sem um ræðir var til rannsóknar hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra en fellt niður tvisvar. Embættið birti tilkynningu nú í morgun í tilefni af umfjöllun fjölmiðla um málið en greint var frá því í vikunni að starfsmanninum sem um ræðir hefði verið vikið frá störfum eftir að tilkynnt var um meint brot en foreldrar leikskólabarnanna ekki látin vita. Meint brotin munu hafa átt sér stað haustið 2024. Rannsókn hætt í tvígang Í tilkynningu sinni segir Lögreglan á Norðurlandi eystra að barnavernd hafi tilkynnt lögreglu um málið vegna upplýsinga frá aðstandana stúlkunnar. Starfsmaðurinn hafi verið sakaður um að hafa kynferðislega áreitt barnið með því að kyssa það en að við rannsókn málsins hafi ekkert komið fram sem studdi framburð aðstandenda. Rannsókn málsins var þá hætt en tekin aftur upp. Henni var svo hætt í annað sinn. „Lögregla hefur óskað eftir því á fundum með foreldrum að þeir komi nýjum upplýsingum um meint brot á framfæri við lögreglu hafi þeir slíkt. Engar upplýsingar hafa borist. Í málinu liggur ekki fyrir rökstuddur grunur um að maðurinn hafi gerst brotlegur gagnvart barninu,“ segir í tilkynningu lögreglu. Rangt farið með staðreyndir Aðstandendur barnsins segja í yfirlýsingu að í tilkynningu sinni hafi Lögreglan á Norðurlandi eystra gefið út upplýsingar sem ekki hafi verið almenningi kunnar og að hún hafi sömuleiðis ekki farið rétt með staðreyndir hvað varðar verknaðarlýsingu. „Þá verður að telja að með framsetningu lögreglu sé lítið gert úr alvarleika málsins, þar sem farið er yfir rannsókn, hvernig hún fór fram og að rannsókn hafi verið hætt í tvígang, auk umfjöllunar um að ákvarðanir hafi verið kærðar til ríkissaksóknara. Eins virðist lögregla hnýta í að þriðji lögmaðurinn hafi tekið málið að sér, verður að telja slíkt afar óviðeigandi,“ segja þau í yfirlýsingunni sem lögmaður þeirra, Sævar Þór Jónsson, gaf út fyrir þeirra hönd. Sjá einnig: Meint kynferðisbrotamál rannsakað í tvígang en fellt niður Þau segja að framangreind háttsemi sé til þess fallin að skaða rannsóknarhagsmuni og brjóta gegn grundvallarreglum um meðferð sakamála og þeirri ströngu þagnarskyldu sem hvílir á lögreglu samkvæmt lögum. „Foreldrar barnsins telja framkomu lögreglu sérstaklega ámælisverða í ljósi þess að um er að ræða mál sem varðar velferð og friðhelgi einkalífs barns.“ Brugðist verði við meintu broti á þagnarskyldu Fyrir hönd aðstandendanna hefur Sævar Þór sent formlega kvörtun til nefndar um eftirlit með lögreglu þar sem farið er fram á að háttsemi embættisins verði tekin til skoðunar. Jafnframt hafa þau óskað eftir því að brugðist verði sérstaklega við broti á þagnarskyldu sem í færslu lögreglu felst. Sjá einnig: Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita „Fyrir liggur að Akureyrarbær er að skoða málið vegna alvarleika þess ásamt mögulega fleiri málum sem upp hafa komið. Því er ekki hægt að fullyrða á þessum tímapunkti að ekki séu til staðar nýjar upplýsingar um ætlað brot eða önnur brot af hendi viðkomandi leikskólastarfsmanns.“
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Akureyri Skóla- og menntamál Leikskólar Lögreglumál Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira