Af hverju bera Hafnfirðingar mestu byrðina? Einar Geir Þorsteinsson skrifar 26. mars 2026 14:56 Hafnarfjörður er 30 þúsund manna bær. Samt er hlutfall íbúa á fjárhagsaðstoð hér hærra en í Reykjavík, sjálfri höfuðborginni. Þetta er staðreynd sem blasir við þegar tölur sveitarfélaganna eru bornar saman. Í Reykjavík eru um 2,1% íbúa á fjárhagsaðstoð en í Hafnarfirði er hlutfallið komið í 2,4%. Tífaldur munur á nágrannasveitarfélögum Samanburður við nágranna okkar í Garðabæ sýnir ójöfnuðinn þó best. Þegar skoðaður er heildarkostnaður vegna móttöku og þjónustu við fólk á flótta er munurinn sláandi. Á síðustu fimm árum hefur Hafnarfjörður varið um 4,3 milljörðum króna í þennan málaflokk á meðan heildarkostnaður Garðabæjar nemur aðeins um 400 milljónum. Við erum að tala um meira tífaldan mun á því álagi sem lagt er á bæjarfélögin. Þetta sést líka á starfsmannahaldinu. Á meðan Garðabær hefur sinnt þessum málaflokki með 1 til 3 stöðugildum, hafa allt að 16 starfsmenn verið bundnir í þessum verkefnum hjá Hafnarfjarðarbæ þegar mest lét. Þetta er gríðarlegt álag á alla innviði sem nágrannar okkar finna varla fyrir. Keðjuverkunin og kostnaðurinn En hvers vegna endar þetta sem hærra hlutfall á fjárhagsaðstoð? Skýringin er sú að þegar fólk kemur inn í landið í leit að vernd eða með dvalarleyfi af mannúðarástæðum, flyst ábyrgðin á framfærslu þess fljótt frá ríkinu yfir á sveitarfélagið og ríkið hefur notað Hafnarfjörð sem aðalmóttökustöð höfuðborgarsvæðisins. Gögnin sýna þessa þróun svart á hvítu hjá okkur í Hafnarfirði. Ef við leggjum saman fjárhagsaðstoð til þeirra sem eru með vernd, annað dvalarleyfi eða óþekkt dvalarleyfi (utan EES), hefur kostnaðurinn hækkað upp úr öllu valdi. Árið 2020 greiddi bærinn samtals um 136 milljónir til þessara hópa. Árið 2024 var sú upphæð komin í rúmar 452 milljónir króna á einu ári. Samtals hafa þessir liðir kostað bæjarbúa yfir tvo milljarða á þessu stutta tímabili. Þetta er keðjuverkun. Miðlægar ákvarðanir ríkisins um að staðsetja móttökuúrræði í Hafnarfirði breytast í varanlegan kostnað fyrir bæjarbúa. Hlutfall erlendra ríkisborgara á fjárhagsaðstoð í Hafnarfirði er nú nær 70%. Þessi gífurlega byrði sem ríkið setur á Hafnfirðinga endar sem þungt álag á skólana okkar, húsnæðismarkaðinn og félagslega þjónustu. Hafnfirðingar eiga að sitja við sama borð Það er ekkert náttúrulögmál að Hafnarfjörður eigi að bera margfalda byrði í samanburði við nágrannasveitarfélögin og er Miðflokkurinn eini flokkurinn í Hafnarfirði sem mun boða raunverulegar breytingar í þessum málaflokki. Miðflokkurinn í Hafnarfirði mun ekki skrifa undir frekari samninga um móttöku flóttafólks eða umsækjenda um vernd. Þá munum við þrýsta af alefli á ríkið að segja upp öllum leigusamningum um móttökustöðvar innan bæjarmarkanna. Rök okkar eru einfaldlega þau að Hafnfirðingar hafa nú þegar borið sína byrði í þessum málaflokki og vel það. Höfundur er oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar