Íslenskt menningarlíf og RIFF Starfsfólk RIFF skrifar 23. mars 2026 11:01 Til hæstvirts ráðherra menningarmála, borgarstjóra og annarra er málið varðar. Við undirrituð erum kjarnastarfsfólk Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík – RIFF. Kvikmyndalistformið er sameiginleg ástríða okkar og vinna okkar við hátíðina felur í sér fágætt tækifæri ár hvert til að komast í snertingu við það sem efst er á baugi í alþjóðlegri kvikmyndagerð. Á hverju hausti kemur íslenskt og alþjóðlegt fagfólk úr greininni saman og leggur til reynslu sína og þekkingu við undirbúning hátíðarinnar. Við hlökkum ævinlega til að taka á móti áhorfendum og kvikmyndagerðarfólki í Reykjavík og skapa viðburð þar sem kvikmyndir, samtöl og menningarleg samskipti fá að njóta sín. Umfjöllun á RÚV þann 4. mars um RIFF endurspeglar ekki upplifun okkar af því að vinna fyrir kvikmyndahátíðina. Við teljum að sú mynd sem dregin var upp af vinnu okkar gefi hvorki rétta né sanngjarna mynd af raunveruleikanum eða fagmennsku þeirra sem að henni standa. Við fögnum gagnrýni og uppbyggilegri umræðu, en leggjum jafnframt áherslu á að umfjöllun fjölmiðla um menningarstofnanir taki mið af þeirri margbreytilegu mynd sem þar er að finna og sé sett fram í góðri trú, fremur en að leitast sé við að brjóta niður það góða starf sem svo margir hafa byggt upp yfir langan tíma. Öflugt starf í þágu íslenskrar kvikmyndamenningar Á undanförnum 20 árum hefur RIFF orðið einn af mest áberandi menningarviðburðum Íslands þar sem áhorfendum gefst færi á að hitta og kynnast kvikmyndagerðarfólki, listafólki og fagfólki hvaðanæva að úr heiminum. Hátíðin eykur sýnileika íslenskrar kvikmyndagerðar í hinu alþjóðlega landslagi lista og menningar og spilar lykilhlutverk í að efla samfélag íslensks kvikmyndaáhugafólks og stækka hóp bíógesta. Trú á menningarlegt gildi RIFF Teymið sem stendur að RIFF samanstendur af fastráðnu heilsársstarfsfólki og fagfólki sem kemur tímabundið til vinnu við hátíðina ár hvert. Margir innan hópsins koma með reynslu að borðinu frá öðrum kvikmyndahátíðum, menningarmiðstöðvum og úr hinum alþjóðlega heimi kvikmyndanna. Sum okkar hafa starfað við RIFF í allt að tíu ár. Alltaf snúum við aftur því við trúum á menningarlegt gildi hátíðarinnar og þátt hennar í kvikmyndamenningu Íslands. Einhugur meðal starfsfólks Eins og algengt er í menningargeiranum vinnum við störf okkar við krefjandi aðstæður og í umhverfi sem sveipað er fjárhagslegri óvissu. Hátíðir af þessari stærðargráðu fela í sér tímabil í aðdragandanum þar sem undirbúningur fer fram undir miklu álagi með aðkomu mismunandi fagaðila. Þrátt fyrir þessar áskoranir ríkir einhugur meðal starfsfólksins um að leggja áfram sitt af mörkum til íslensks menningarlífs og standa vörð um RIFF sem rými þar sem kvikmyndalistin og menningarlegt samtal fá að dafna. Kvikmyndahátíðir, kvikmyndahús, kvikmyndagerðarfólk, stofnanir og áhorfendur mynda saman menningarlegt vistkerfi sem gerir kvikmyndum kleift að vaxa sem listform og sem rými fyrir samtal. Í gegnum árin hefur RIFF unnið ötullega að fjölgun áhorfenda, dreifingu mynda, og sýnileika íslenskrar menningar á hinu alþjóðlega sviði. Opinber stuðningur skiptir öllu Við viljum því beina þeirra einlægu ósk okkar til ráðherra menningarmála og til Reykjavíkurborgar að búa okkur þann stöðugleika sem nauðsynlegur er til að gera hátíðina vel úr garði, til að undirbúa næstu Alþjóðlegu kvikmyndahátíð í Reykjavík, sem fram fer dagana 24. september til 4. október á þessu ári og til framtíðar. Menningarviðburðir RIFF eiga allt sitt undir því að samfella sé í opinberum stuðningi og samstarfi svo þeir fái dafnað og geti þjónað áhorfendum, kvikmyndagerðarfólki og menningarumhverfinu öllu. Eins og hvert annað menningarvistkerfi eflist kvikmyndamenning þegar að henni er hlúð. Við trúum því að áframhaldandi samtal milli menningarviðburða, starfsfólks í menningargeiranum og opinberra aðila sé nauðsynlegt til að standa vörð um heilbrigt og gagnsætt menningarumhverfi. RIFF er sem fyrr ákveðið í að vinna með uppbyggilegum hætti með samstarfsaðilum og opinberum stofnunum til að stuðla að áframhaldandi vexti og velmegun íslenskrar kvikmyndagerðar og íslenskrar menningar. Með hlýjum kveðjum og von um uppbyggilegt samstarf á komandi mánuðum, Höfundar eru starfsfólk RIFF og starfa við dagskrárgerð, verkefna- og viðburðastjórnun, sýningarstjórnun, markaðsmál, almannatengsl, gestaumsjón og fleira. Frédéric Boyer, Ana Catalá, Denisa Deac, Jenn Raptor, Jón Agnar Ólason, Maja Anita, Jankowska, Margrét Erla Þórsdóttir, Maria Halina Baranczyk, Ólöf Agnes Arnardóttir, Pedro Emilio, Segura Bernal, Petter Trønsdal og Sverre Matias Smith. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein RIFF Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar