Sósíalistar skila ekki auðu í húsnæðismálum Kópavogs Markús Candi skrifar 23. mars 2026 10:30 Bæjarráð Kópavogs hafnaði nýlega tillögu til að byggja 24 íbúðir fyrir tekjulægstu íbúa bæjarins. Tillagan barst frá Bjargi Íbúðafélagi, samtök sem hafa byggt yfir þúsund heimili um allt land. Forseti ASÍ og formaður stjórnar Bjargs, Finnbjörn A. Hermannsson, upplýsti nýverið Kópavogsbúa um þessa niðurstöðu. Þegar sveitarfélag hafnar félagslegu húsnæði er það í raun að ákveða hverjir fá að búa í bænum. Síðan 2018 hefur Bjarg óskað eftir samstarfi við Kópavogsbæ um uppbyggingu húsnæðis fyrir almenning sem hluta af verkefni þeirra til að bregðast við húsnæðisvandanum. Ekki er hægt að segja að þetta verkefni sé óraunhæft, heldur úrræði sem hefur þegar skilað góðum árangri. Frá því að lög um almennar íbúðir voru sett árið 2016 hefur Bjarg byggt yfir þúsund íbúðir og þúsundir einstaklinga fengið öruggt langtímaleiguhúsnæði. Bjarg keypti lóð í Hallahvarfi á markaðsverði og óskaði eftir stofnframlagi, sama stuðningi og önnur sveitarfélög hafa veitt til að gera slíka uppbyggingu mögulega. Stofnframlagið er endurgreitt og tengt verðþróun íbúða. Samt var beiðninni hafnað. Í fundargerð bæjarráðs frá 12. febrúar kemur fram að meirihlutinn telji það „ekki samræmast þeim áherslum” bæjarins að veita Bjargi stofnframlag upp á 220 milljónir króna. Þar er jafnframt vísað til þess að bærinn vilji „auka framboð húsnæðis af öllum gerðum fyrir kaupendur á almennum húsnæðismarkaði.” Þetta vekur þó spurningar. Ef markmiðið er aukið framboð húsnæðis fyrir íbúa bæjarins, hvers vegna er þá hafnað uppbyggingu sem myndi skapa 24 ný heimili? Má þá álykta að fólk með lægri tekjur sé ekki hluti af þeirri framtíðarsýn sem núverandi meirihluti hefur fyrir Kópavog? Þess í stað sitja leigjendur eftir á áhættusömum leigumarkaði þar sem verð hækkar stöðugt og erfiðara er að ná endum saman. Það er ósanngjarnt og rangt að velta þessum vanda yfir á leigjendur þegar tryggt og öruggt húsnæði er á ábyrgð sveitarfélaga gagnvart íbúum sínum. Fyrir margar fjölskyldur, sérstaklega þær sem standa verst, skiptir húsnæði ekki aðeins máli fyrir fjárhag heldur líka vellíðan barna. Þegar grunnþættir fjölskyldulífs, eins og húsnæði og leikskólapláss, verða sífellt dýrari, verður staðan enn erfiðari og svigrúmið til að búa í bænum minnkar. Þegar fjölskyldur þurfa endurtekið að flytja vegna ótryggs leigumarkaðar rofna tengsl við vini, skóla og nærumhverfi. Þessi stöðugleiki er algjört grundvallaratriði og stefna sveitarfélagsins í slíkum málum breytir lífum barna. Sveitarfélög þurfa að leggja sitt af mörkum til að tryggja stöðugleika á húsnæðismarkaði og skapa raunveruleg úrræði fyrir fólk með lægri tekjur, því félagslegt húsnæði byggist ekki af sjálfu sér. Árið 2023 voru 121 umsókn á biðlista eftir félagslegri leiguíbúð í Kópavogi og meðalbiðtími eftir úthlutun var þá um þrjú ár. Lágtekjufjölskyldur eru að verða frystar út úr Kópavogi með óralöngum biðtímum og meirihlutinn í Kópavogi hefur tekið þá ákvörðun að líta undan á meðan þörfin vex enn. Sósíalistaflokkur Íslands myndi að sjálfsögðu fara aðra leið. Við myndum styðja samstarf við verkefni eins og Bjarg til að byggja fleiri félagslegar íbúðir og tryggja að Kópavogur taki raunverulega þátt í að leysa húsnæðisvandann. Húsnæðisöryggi á ekki að vera forréttindi fárra heldur grunnöryggi allra. Kópavogur á betra skilið. Höfundur er oddviti Sósíalistaflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar