Brobbey braut hjörtu svarthvítra Valur Páll Eiríksson skrifar 22. mars 2026 13:57 Brobbey reif sig úr eftir dramatískt sigurmark og gat ekki verið meira sama um gula spjaldið sem hann fékk að launum. Owen Humphreys/PA Images via Getty Images Hollendingurinn Brian Brobbey var hetja Sunderland í 2-1 sigri á Newcastle í grannaslagnum í norðrinu á Englandi í dag.
Mikil eftirvænting var fyrir leik dagsins, enda rígurinn töluverður á milli liðanna tveggja úr norðrinu. Newcastle kom inn í leikinn eftir stórtap fyrir Barcelona í miðri viku og vildu svarthvítir bæta upp fyrir það. Það fór vel af stað. Anthony Gordon kom liðinu í forystu eftir tíu mínútna leik þegar Sunderland lenti í vandræðum í uppspilinu. Nick Woltemade vann boltann innan teigs Sunderland, gaf á Gordon sem skoraði og allt ætlaði um koll að keyra á St. James‘ Park. Staðan var 1-0 í hléi en um tólf mínútur voru liðnar af síðari hálfleik þegar Chemsdine Talbi jafnaði leikinn fyrir gestina. Hann skoraði með skoti úr teignum eftir hornspyrnu. Sunderland var sterkari aðilinn í síðari hálfleiknum en Newcastle tókst þó að skora eftir horn þegar um stundarfjórðungur var eftir. Malick Thiaw skallaði í netið en markið dæmt af vegna brots Jacobs Murphy á markverði Sunderland. Allt stefndi í jafntefli þegar Hollendingurinn Brian Brobbey skoraði sigurmarkið á 90. mínútu eftir fína sókn. Hann lét Aaron Ramsdale verja frá sér af stuttu færi en fylgdi eftir, kom boltanum í netið og Sunderland-menn ærðust af kæti. Með sigrinum fer Sunderland upp fyrir Newcastle í töflunni. Sunderland er með 43 stig í 11. sæti en Newcastle með stigi minna, sæti neðar.
Enski boltinn Sunderland AFC Newcastle United Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira