Það er ekki allt í góðu í orkumálum í Svíþjóð Gunnar Einarsson skrifar 18. mars 2026 13:00 Miðað við það sem ég hafði heyrt, af orkumálum í Svíþjóð, þá kom mér á óvart efni greinar Eyþórs Eðvarðsson hér fyrir skömmu. Veruleikin sem hann lýsir er glansmynd. Vissulega hafa verið reistar margar vindmyllur í Svíþjóð, sem hafa minnkað losun á CO2. Margir Svíar eru farnir að efast um ágæti vindmyllnanna. Maður er nefndur Christian Steinbeck. Hann er hagfræðingur sem unnið hefur við fjármálastjórn í mörgum fyrirtækjum í Svíþjóð. Hann fór að skoða fjármálahlið raforkuframleiðslu með vindmyllum. Í stuttu máli segist hann aldrei hafa séð jafn dapran rekstrargrunn fyrir nokkurt fyrirtæki. Opinber nefnd, ákvað að það ætti að tala á jákvæðum nótum um vindorkuna. Evrópski fjárfestingarbankinn og sjóðir erlendra ríkja hafa dælt í þetta lánum, sem hafa fengist með mjög lágum vöxtum. Sænska ríkið hefur líka verið hjálplegt og meðal annars beint peningum úr lífeyrissjóðum í grænu orkuna. Eitt sem Christian nefnir er að minni vindmyllurnar, sem fyrst voru reistar og voru gjarnan 35-45 metrar, virðast oft geta endst 25-30 ár, eins og gert var ráð fyrir. Eftir því sem þær verða hærri endast þær skemur, oft ekki nema nokkur ár og geta þannig aldrei orðið hagkvæmar. Vindmillur eru oft 170-200 metrar í dag. Vegna orkustefnunnar er rafmagnið orðið dýrt og mörg fyrirtæki eru hætt að fjárfesta og munu flytja annað eða koðna niður. Ekki taka mín orð fyrir þessu, hlustið á málflutning Christian: https://www.youtube.com/watch?v=a9c0Jrc2dgg Tökum annan, Christian Sandström. Hann er bæði verkfræðingur og hagfræðingur, sem hefur stundað rannsóknir á vindmylluvæðingunni í Svíþjóð. Úttekt hans á vindmyllu ævintýrinu, ætti að vera skyldu áhorf fyrir þá sem eru ólmir í að reisa vindmyllur á Íslandi. https://www.youtube.com/watch?v=UZAWDGYL_c0 Hér er enn eitt youtube myndaband af löngum lista. Það er með Henrik Jönsson og er bæði skýrt og upplýsandi: https://www.youtube.com/watch?v=3ydpZoADsKA Það eru vindmyllugarðar í Svíþjóð, sem engin vill kaupa og fengust án efa ódýrt. Græna stálið. Tunguliprum tókst að raka saman gríðarlegum peningum til að fjárfesta í stálverkssmiðju „STEGA“, sem á að framleiða grænt stál. Framkvæmdir hafa tafist mikið og kostnaður farið langt fram úr áætlun. Það var alltaf ljóst að stálið, sem kæmi frá verksmiðjunni yrði dýrt. Nú er ljóst, að ef framleiðslan fer í gang, verður stálið þaðan rándýrt eða fjórum til 8 sinnum dýrara en stál frá Kína. Það er mjög harðnandi samkeppni, til dæmis í bílaiðnaðinum. Markaðurinn slóst ekki um kísilmálminn frá Bakka þó þar væri framleitt með grænni orku. Þeir svartsýnu spá því að það muni ekki koma neitt stál úr þessari verksmiðju. Bjartsýnir vona að sænska ríkið dæli enn fleiri milljörðum inn í fyrirtækið til að fjárfestar vilji þá ef til vill koma með meira fé í þetta. Annað grænt fyrirtæki átti að framleiða batterí í Græna ævintýrið, „NORTHVOLT“ . Það fór á hausinn áður en þeir gátu framleitt eitt batterí. Fjármögnunin var eftir svipuðum aðferðum og er í Græna stálinu. Margir þeir sem komu að stofnun NORTHVOLT eru með í STEGA. Gjaldþrotið NORTHVOLT var upp á 1100 milljarða. Hugmyndin um græna stálið virðist hafa verið rekið áfram af draumórum frekar en raunsæi. Vonandi tekst að koma framleiðslunni í gang. Það fengist þá einhver lærdómur út úr öllum þessum peningum, sem hafa farið í þetta verkefni. Hér er lýsing Henrik Jönsson á græna stálinu. Sannleikurinn er frekar dapur. https://www.youtube.com/watch?v=Ebw-R9EelVc Orkuframleiðsla Svía og okkar. Ég spurði gervigreindina um framleiðslu annarsvegar Svía og hins vegar okkar, á hreinni orku. Svíar framleiða 16000 kílówatt stundir af hreinni orku á ári á mann, ef við tökum kjarnorkuna með. Þetta er meiri hrein orka en flestir aðrir framleiða. Við framleiðum 55000 kws. Hvernig má það vera að einhverjir telji að Svíar hafi staðið sig vel, en við illa, við að stuðla að minni losun á CO2? Við erum að spara öðrum að brenna jarðefnum með því að framleiða rafmagn fyrir stóriðju. Þjóðir heims eru jú saman um loftslagið. Ef bókaldið er rétt, hlýtur að vera betra að spara mikið fyrir aðra, heldur en að spara smávegis fyrir okkur sjálf. Ég skil ekki af hverju einhverjir vilji endilega túlka tölur, sem eru allar okkur í hag, þannig að við séum syndaselir. Græna byltingin í Svíþjóð hefur verið knúin áfram með því að flétta saman gamaldags sósíalisma, pilsfalda kapítalisma og draumóra. Útkoman er að örfáir græða, almenningur borgar kostnaðinn. Allir þessir peningar eru að gera lítið sem ekkert gagn. Það ættu sem flestir að kynna sér sænska skrímslið, sem þeir kalla „grönne omstellningen“. Skrímslið er víti að varast alls ekki eitthvað til að herma eftir. Það fer um mann kulda hrollur þegar það berast núna af því fréttir að ráðherra ferðist um Ísland með vindmyllu agentum, til að boða að við þurfum vindmyllur á sem flesta hóla og enn verra að heyra, þetta eigi að gera til að bjarga þjóðarhag. Höfundur er fyrrverandi bóndi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun