Skoðun

Gullasninn

Guðjón Þórir Sigfússon skrifar

Það er ekki til það fjall sem asni klyfjaður gulli kemst ekki yfir. Er sjálfstæði Íslands verðmetið að verðleikum? Land sem er með ríkustu þjóðum heims, þarf það að breyta um kúrs, setja sínar miklu auðlindir í hendur annarra til útdeilingar og umráða fyrir komandi kynslóðir. Síðast var sagt stopp þegar Brussel krafðist útdeilingar á auðlindum landsins. Er hægt að horfa til vesturs? Dans kringum gullasnann er byrjaður. Hrunadans við gullkálfinn var fyrir tæpum 20 árum, með sömu persónum og leikendum. Þurfum við þetta - enn og aftur?

Höfundur er verkfræðingur og áhugamaður um sjálfstæði Íslands.




Skoðun

Skoðun

Gullasninn

Guðjón Þórir Sigfússon skrifar

Sjá meira


×