Þétting byggðar og miðsókn – skipulagsstefna sem þjónar ekki öllum Þórir Garðarsson skrifar 16. mars 2026 09:16 Þétting byggðar og breytt borgarmynd Undanfarna áratugi hefur verið lögð mikil áhersla á þéttingu byggðar í Reykjavík. Í framkvæmd virðist sú stefna þó í auknum mæli fela í sér að sífellt fleiri stofnanir, skólar og þjónusta eru dregin saman á tiltölulega litlu svæði í eða við miðborg Reykjavíkur. Slík þróun er ekki sjálfkrafa skynsamleg og hún þjónar alls ekki öllum, ekki síst hinum venjulega vinnandi manni. Atvinnusvæði víkja fyrir íbúðabyggð Áratugum saman voru víða í Reykjavík öflug atvinnusvæði, til dæmis í Borgartúni, Vogahverfi og á Ártúnshöfða. Þar störfuðu fjölmörg fyrirtæki og þangað sótti fjöldi fólk vinnu úr mörgum hverfum borgarinnar. Sú þróun hefur hins vegar tekið miklum breytingum. Í stað þess að viðhalda fjölbreyttu atvinnulífi innan borgarinnar hefur skipulagsstefna í auknum mæli gengið út á að ýta atvinnustarfsemi til hliðar og rýma fyrir íbúðabyggð. Í mörgum tilfellum hefur fyrirtækjum í þessum hverfum einfaldlega verið gert að víkja fyrir íbúðablokkum. Á sama tíma hefur Reykjavíkurborg ekki haft nægar lóðir til reiðu fyrir áframhaldandi starfsemi fyrirtækja sem þurfa rými fyrir iðnað, þjónustu eða lagerstarfsemi. Afleiðingin hefur orðið sú að mörg þeirra hafa flutt starfsemi sína annað, til dæmis upp í Mosfellsbæ eða suður á Velli í Hafnarfirði. Samgöngur verða flóknari Þessi þróun hefur augljós áhrif á samgöngur. Stórir og smáir vinnustaðir færast út fyrir borgarmörkin á sama tíma og sífellt meiri opinber starfsemi er dregin inn í miðborgina. Ferðalengdir lengjast og samgöngumynstur verður flóknara en áður. Samhliða þessu hefur grænum svæðum innan borgarinnar fækkað. Svæði sem áður voru opin og græn víkja í auknum mæli fyrir þéttari byggð. Í Vogahverfi má jafnvel sjá táknræna breytingu þar sem hugmyndir eru uppi um að pálmatré verði sett niður sem skraut í nýjum uppbyggingarsvæðum á sama tíma og raunverulegum grænum svæðum fækkar. Miðsókn í skipulagi borgarinnar Í grunninn snýst þetta ekki aðeins um samgöngur heldur um skipulagsstefnu borgarinnar. Þótt íbúum og bílum fjölgi leiðir það ekki sjálfkrafa til þess að allir eigi að ferðast sömu leiðir niður í miðborg Reykjavíkur. Samt virðist leiðakerfishugmynd Borgarlínu að miklu leyti byggja á þeirri forsendu að stærstur hluti ferða eigi sér upphaf eða endi þar. Slík nálgun er varhugaverð. Samgöngukerfi sem byggir á því að draga meginþunga ferða að einum kjarna eykur óhjákvæmilega álag á samgöngur í stað þess að dreifa því. Landspítalinn og miðsóknin Þegar tekin var ákvörðun um staðsetningu nýs Landspítala við Hringbraut var einmitt bent á þessa hættu. Þá var varað við því að með þeirri ákvörðun yrði enn meiri starfsemi dregin inn í miðborgina. Á sínum tíma voru sett fram rök fyrir því að skoða aðra kosti, meðal annars Keldnaholtslandið, þar sem aðstæður til samgangna og framtíðarþróunar væru rýmri og gætu dreift umferðarálagi betur um höfuðborgarsvæðið. Stofnanir safnast á sama stað Svipuð þróun má sjá víðar. Húsnæði Listaháskóla Íslands verður í miðborginni og háskólasvæðin eru almennt mjög miðlæg. Þótt Háskólinn í Reykjavík sé staðsettur í Vatnsmýrinni sem og 600 manna vinnustaður Alvotech sýnir þróunin að stórar stofnanir, skólar og opinber þjónusta hefur safnast í auknum mæli á sama svæðið. Þegar atvinnuhúsnæði, háskólar, heilbrigðisþjónusta og opinberar stofnanir eru settar nánast á einn blett er í raun verið að búa til meiri umferð og reyna síðan að leysa vandann með nýju samgöngukerfi. Grundvallarspurningin Raunverulega spurningin er því þessi: Er skynsamlegt að skipuleggja borg þannig að allir þurfi að fara sömu leiðir á hverjum degi? Frekar en að verja hundruðum milljarða í nýtt samgöngukerfi væri nær að ræða skipulagið sjálft. Skynsamlegt borgarskipulag snýst ekki aðeins um hvernig fólk ferðast heldur líka um hvert það þarf yfirhöfuð að fara. Það er brýnt að fara í markvissa stefnumótun um þróun höfuðborgarsvæðisins þar sem starfsemi, þjónusta og atvinnuuppbygging dreifist skynsamlega. Með slíkri nálgun má draga úr óþarfa umferðarþunga, stytta ferðalengdir og byggja upp skilvirkara og sjálfbærara borgarskipulag til framtíðar. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórir Garðarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar