Donni drjúgur og Elvar með frábæran leik Aron Guðmundsson skrifar 14. mars 2026 16:44 Kristján Örn Kristjánsson, Donni. Vísir/Vilhelm Íslendingar létu til sín taka í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Kristján Örn Kristjánsson reyndist drjúgur fyrir sitt lið SAH í miklum spennutrylli gegn GOG sem lauk með jafntefli, 28-28.
Kristján Örn, betur þekktur sem Donni skoraði fjögur mörk fyrir SAH í dag en liðið leiddi með einu marki, 28-27, þegar aðeins nokkrar sekúndur eftir lifðu leiks. Því miður fyrir leikmenn SAH tókst Nicolai Pedersen að ná inn mikilvægu jöfnunarmarki fyrir GOG undir lokin og skildu liðin því jöfn, 28-28. Með jafnteflinu nær SAH hins vegar að halda GOG fyrir neðan sig í töflunni. SAH er nú með 34 stig í öðru sæti dönsku úrvalsdeildarinnar á meðan að GOG er í þriðja sæti með einu stigi minna. Elvar öflugur Þá skoraði Elvar Ásgeirsson fimm mörk er lið hans Ribe Esbjerg bar sigurorðið af liði Grinsted í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lokatölur urðu 28-32. Elvar Ásgeirsson var flottur í dagvísir/Vilhelm Grinsted hefur átt erfitt uppdráttar í dönsku úrvalsdeildinni til þessa og hafði aðeins nælt í fjögur stig fyrir leik dagsins gegn Elvari og félögum. Ekki nældi liðið í fleiri stig í dag. Elvar var á meðal markahæstu leikmanna Ribe-Esbjerg með sín fimm mörk í dag og þá gaf hann fjórar stoðsendingar og kom því að níu mörkum fyrir liðið sem nældi í mikilvægan sigur og færist fjær botni deildarinnar. Sem stendur er Ribe-Esbjerg nú með átján stig eftir 24 leiki og er aðeins tveimur stigum frá liðunum sem eru í efri hluta deildarinnar.
Danski handboltinn Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira