Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. mars 2026 14:25 Eyþór Harðarson falast ekki eftir bæjarstjórastólnum. Vísir/Samsett Eyþór Harðarson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum segist ekki sækjast eftir bæjarstjórastarfi falli það honum í skaut að leiða meirihluta.
Hann hafði betur í oddvitaslag við Trausta Hjaltason og hlaut tæp 63 prósent atkvæða í fyrsta sætið. Heimildir fréttastofu herma að allar líkur séu á því að til standi að ráða Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Eyjum síðastliðin átta ár, aftur í starfið. Fréttastofa hefur fjallað um væringar stríðandi fylkinga meðal Sjálfstæðismanna í Eyjum sem rekja má til klofningar H-listans frá lista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar 2018. Með „ágætisvinnu í Ísfélaginu“ Eyþór segist ánægður með niðurstöðurnar en ætlar ekki að falast eftir bæjarstjórastólnum. „Ég hef alltaf sagt það að ég er í ágætisvinnu hér í Ísfélaginu. Ég er ekki að sækjast eftir bæjarstjórastarfi. Við hópurinn sem leiðir listann förum bara yfir það og komumst að einhverri niðurstöðu þegar líður á vorið,“ segir hann. Engar endanlegar ákvarðanir hafi verið teknar um bæjarstjóraefni listans. „Það er ekkert slegið í pólitík.“ Mögulegar sviptingar á listanum Aðspurður segist hann ekki átta sig á því hvort allir frambjóðendur þiggi sætin sín á listanum enda voru þeirra á meðal fulltrúar hinnar fylkingarinnar sem kennd hefur verið við Elliða Vignisson bæjarstjóra í Ölfusi sem um árabil var bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. „Það eru margir sem ná ekki markmiðum sínum í prófkjöri frekar en í prófkjörum oft á tíðum. Það eru allir bara held ég að meta sína stöðu í dag og vonandi erum við að fara að mynda sterkan og samhentan lista eftir nokkra daga. Ég sé ekki neitt annað í þessari stöðu,“ segir Eyþór. Endanleg niðurstaða í efstu sætum prófkjörsins er eftirfarandi: 1. Eyþór Harðarson hlaut 715 atvæði eða 62,6 prósent 2. Trausti Hjarðarson hlaut 441 atkvæði eða 38,6 prósent 3. Aníta Jóhannsdóttir hlaut 488 atkvæði eða 42,7 prósent 4. Óskar Jósúason hlaut 504 atkvæði eða 44,1 prósent 5. Hildur Sólveig Sigurðardóttir hlaut 549 atkvæði eða 48,1 prósent 6. Kjartan Vídó Ólafsson hlaut 584 atkvæði eða 51,1 prósent 7. til 8. Margrét Rós Ingólfsdóttir og Rannveig Ísfjörð eru jafnar með 538 atvkæði eða 47,1 prósent
Sjálfstæðisflokkurinn Vestmannaeyjar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira