„Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Agnar Már Másson skrifar 13. mars 2026 21:24 Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri heilsugæslunnar, og Björn Brynjúlfur, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, ræddu málin í setti. Vísir Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir það ekki rétt að einkareknar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu skari fram úr hinum opinberu. Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segist vilja auka heilbrigða samkeppni milli heilsugæslustöðva enda sé biðtími eftir lækni að meðaltali langur.
Fólk þarf að meðaltali að bíða í 27 daga eftir tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt úttekt Viðskiptaráðs, eða fimmfalt lengur en sem nemur fimm daga viðmiði landlæknis. Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri heilsugæslunnar, tókust á um málin í setti. Sigríður Dóra sagði að heilsugæslan legði áherslu á að fólk fengi tíma eftir því hvert erindið væri og eftir því hvaða fagaðila er best að hitta. „Fyrir öll bráðaerindi áttu að komast að innan sólarhrings,“ sagði hún. „Þessi einfalda leið sem tíðkaðist þegar við vorum ung fyrir löngu síðan er ekki lengur það sem gildir í dag,“ sagði hún einnig. Í grunninn vantaði fjármagn og heimilislækna. Telma Tómasson sjónvarpsþulur nefndi þá að hún hefði sjálf bókað tíma hjá heilsugæslu og fengið upp að biðtíminn væri 31 dagur. „Ég myndi vilja óska að það væri engin bið,“ sagði hún. „En við viljum fara vel með fjármuni hins opinbera; það er ekki alltaf þannig að það sé rétt að hitta lækninn fyrst heldur þarftu kannski fyrst að hitta sjúkraþjálfara eða ljósmóður eða hvað sem er.“ En er þetta ásættanlegt? „Við verðum að horfast í augu við að við höfum ekki nógu mikinn mannafla og verðum að aðlaga okkur að því og gera sem best úr. Þá er það meðal annars að breyta þeirri hugsun að þú hringir alltaf og pantar tíma hjá heimilislækni.“ Björn hjá Viðskiptaráði sagði að litið væri til tveggja atriða um hvernig mætti leysa þennan vanda: annars vegar að fjölga læknum og hins vegar að auka afköst kerfisins. „[Þ]að er pottur brotinn í stefnu stjórnvalda,“ sagði Börn sem nefndi svo að fjórar einkareknar heilsugæslur væri að finna á höfuðborgarsvæðinu; Höfða, Urðarhvarfi, Salahverfi og Kirkjusandi. Þessar heilsugæslur hefðu raðað sér í efstu sæti í samanburðarmælingum bæði hvað varðar gæði þjónustu. Viðskiptaráð vill að samkeppnisstaða heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins annars vegar og einkarekinna heilsugæslustöðva sé jöfnuð. „Þetta eru tillögur meðal annars frá Samkeppniseftirlitinu sem við erum í þessari úttekt að gera að okkar og erum að hvetja til þess að þjónustan sé veitt á jöfnum grundvelli.“ Hann segir að aukin samkeppni myndi bæta þjónustu og draga verulega úr vandanum sem birtist í þessum langa biðtíma eftir þjónustu hjá heilsugæslunni. Sigríður Dóra hjá heilsugæslunni greip þá orðið og sagði að í úttekt Viðskiptaráðs væri vísað í þriggja ára gamla þjónustukönnun, ný könnun sýni aðra mynd. „Það er ekkert ein mynd í þessu. Einkareknu stöðvarnar eru að blanda sér inn í okkar stöðvar. Þetta er allt fínt fagfólk, það vantar alls staðar fagfólk,“ segir hún. „En því er ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr. Margar stöðvar sýna alveg frábæran árangur, jafnt hjá okkur og þeim. Við erum öll að vinna að því að bæta þjónustu í heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu og við erum ekki að gera okkur einhverja óvini.“ Björn tók fram að hann teldi heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu vinna frábært starf og að hann vildi ekki egna þessum tveimur aðilum gegn hver öðrum, heldur vilji þeir að leikreglur séu þær sömu fyrir alla. „Þannig fáum við heilbrigða samkeppni,“ heldur Björn áfram og nefndi að stjórnvöld hefðu dregið lappirnar árum saman og réðust aldrei í umbætur. Viðskiptaráð vilji tvímælalaust auka einkarekstur í heilsugæslu og nefnir Skandinavíu sem dæmi; þar sé hið opinbera enn fjármögnunaraðilinn en þar komi þó „dynamík“ í kerfið sem geti stytt biðtíma. Sigríður tók þá fram að rekstur heilsugæslustöðva á Norðurlöndum væri mjög fjölbreyttur og mismunandi hve mikið væri einkarekið en þar væri ávallt sterkur grunnur hins opinbera. „Fjármagnið kemur allt frá ríkinu,“ sagði hún. „Við skulum muna það líka að allar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu, og reyndar á landsbyggðinni líka, vinna eftir sömu kröfulýsingum, sömu lögum og reglugerðum og eru í sama fjármögnunarlíkaninu. Við erum allar á sama borði, við erum að spila með sömu spilin,“ sagði Sigríður Dóra að lokum.
Heilbrigðismál Heilsugæsla Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Sjá meira