Sjónarmun á undan í maraþoni eftir lygilegan endasprett Sindri Sverrisson skrifar 9. mars 2026 08:32 Eins og sjá má var talsverður munur á fremstu tveimur mönnum í lokin en Nathan Martin tókst að vinna upp þann mun og koma sekúndubrotum á undan í mark. Bandaríski forfallakennarinn Nathan Martin vann hreint ótrúlegan sigur í Los Angeles maraþoninu í gær. Myndband af sigrinum hefur vakið mikla athygli.
Martin var langt á eftir Keníabúanum Michael Kamau en náði með mögnuðum lokaspretti að skjóta sér fram fyrir og enda sjónarmun á undan honum. Á myndbandinu hér að neðan má sjá lokasprettinn en Martin þurfti að éta upp mikið forskot í lokin. Lýsendur trúðu vart sínum eigin augum þegar það tókst þó á endanum en hlaupararnir enduðu í raun báðir með sama tíma, eða 2 klukkustundir, 11 mínútur og 18 sekúndur. Það var hins vegar Martin sem kom fyrstur í mark og sleit borðann á endalínunni. Jaw-dropping! American Nathan Martin storms from behind to snatch victory from Kenyan Michael Kamari at the LA Marathon finish line! 🏃🇺🇸🔥pic.twitter.com/YrVXQj4tQG— 💕 Brittany Belle 💕 (@BrittanyinTexas) March 9, 2026 Martin sagðist eftir sigurinn hafa ákveðið að auka við hraðann þegar um átta kílómetrar voru eftir. „Þegar ég sá að það var enginn annar að bæta í hraðann þá ákvað ég að ég skyldi gera það. Þegar ein og hálf míla (2,4 kílómetrar) var eftir þá gat ég séð fremsta mann og þegar það voru 800 metrar eftir hugsaði ég með mér: „Ég næ honum.““ Kamau mun hafa sleppt því að innbyrða vökva í hlaupinu og var gjörsamlega örmagna þegar hann kom í mark og féll strax niður. Martin, sem eins og fyrr segir er forfallakennari en einnig hlaupaþjálfari hjá Jackson High School í Michigan, virtist hins vegar bara ferskur og eiga nóg eftir. Besti tími Martins er frá árinu 2023 þegar hann hljóp á 2:10:45 og varð hann um leið fljótasti, þeldökki Bandaríkjamaður sögunnar til að hlaupa maraþon. Þar til í fyrra, þegar Matt Richtman vann, hafði Bandaríkjamaður ekki unnið Los Angeles maraþonið frá árinu 1994. Enyew Nigat frá Kenía varð í þriðja sæti í gær á 2:14:23 klukkutímum. Í kvennaflokki vann Priscah Cherono frá Kenía á 2:25:20. Þessi 45 ára gamla hlaupakona keppti á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008, þá í 5.000 metra hlaupi, og varð í 10. sæti. Kellyn Taylor varð í 2. sæti á 2:27:38 og Antonina Kwambai í 3. sæti á 2:28:50.
Hlaup Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Fattaði ekki að hann hefði fótbrotnað Hljóðnema á dómarana og hvar er Kane? Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Wirtz sé búinn að missa trúna Þekkir ekkert annað en pressu Djús en ekki bjór Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Kláraði að hjóla 420 km á fjórum dögum fyrir kappakstur Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Dagskráin í dag: Bónus-deildin hefst með látum Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Tarik framlengir við Víking Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Leikmaður ársins missir af landsleikjum Áföllin halda áfram að dynja á Russell Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira