Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Lovísa Arnardóttir skrifar 6. mars 2026 15:03 Eldingu laust niður í Hallgrímskirkjuturn í eldingarveðri fyrir um ári síðan. Hákon Örn Helgason Gul viðvörun er í gildi vegna eldinga á Suðurlandi. Veðurfræðingur segir eldingarnar að mestu hafa verið bundnar við syðsta hluta landsins fyrir hádegi en veðrið sé að færast vestar. Fréttastofa hefur frétt af eldingum í Mosfellsbæ síðdegis í dag og þá var einnig greint frá rafmagnsleysi í Þorlákshöfn. „Það er hlýtt loft víða og kaldara loft í háloftunum en nær yfirborði, það kemur ekkert á óvart að sjá eldingar við þannig kringumstæður. Það er útlit fyrir að þetta haldist eitthvað inn í daginn. Gul viðvörun er í gildi til klukkan sex og við þurfum að sjá hvort henni verði framlengt,“ segir Hera Guðlaugsdóttir veðurfræðingur á Veðurstofunni. Í viðvörun Veðurstofunnar segir að búist sé við þrumuveðri á landinu með tíðum eldingum. Forðast beri vatn, hæðir í landslagi og berangur. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Nánari upplýsingar um viðbrögð við eldingaveðri eru á upplýsingasíðu almannavarna. Hera segir að þó svo að varað sé við því að vera í nálægð við vatn ætti að vera í lagi að ganga á milli húsa en fólk ætti að forðast vatn, hæðir og að vera í berangri. Til dæmis sé mögulega varasamt að ganga með hundinn á túni eða að fara í sund. „Fyrir hádegið var þetta bundið við syðsta hlutann á landinu en núna er þetta að færast vestar. Við erum með skil sem eru að ganga yfir og þetta er meira og minna í skilunum. Það er spurning hvort þetta verði komið vestur af Reykjanesi í kvöld,“ segir Hera en Veðurstofan fylgist vel með því hvort þá komi næsti skammtur og taki við af því. Hefur veðrið áhrif á þig? Hvernig? Sendu okkur ábendingu og myndir á ritstjorn@visir.is eða sem Fréttaskot hér. Veður Mosfellsbær Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Sjá meira
„Það er hlýtt loft víða og kaldara loft í háloftunum en nær yfirborði, það kemur ekkert á óvart að sjá eldingar við þannig kringumstæður. Það er útlit fyrir að þetta haldist eitthvað inn í daginn. Gul viðvörun er í gildi til klukkan sex og við þurfum að sjá hvort henni verði framlengt,“ segir Hera Guðlaugsdóttir veðurfræðingur á Veðurstofunni. Í viðvörun Veðurstofunnar segir að búist sé við þrumuveðri á landinu með tíðum eldingum. Forðast beri vatn, hæðir í landslagi og berangur. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Nánari upplýsingar um viðbrögð við eldingaveðri eru á upplýsingasíðu almannavarna. Hera segir að þó svo að varað sé við því að vera í nálægð við vatn ætti að vera í lagi að ganga á milli húsa en fólk ætti að forðast vatn, hæðir og að vera í berangri. Til dæmis sé mögulega varasamt að ganga með hundinn á túni eða að fara í sund. „Fyrir hádegið var þetta bundið við syðsta hlutann á landinu en núna er þetta að færast vestar. Við erum með skil sem eru að ganga yfir og þetta er meira og minna í skilunum. Það er spurning hvort þetta verði komið vestur af Reykjanesi í kvöld,“ segir Hera en Veðurstofan fylgist vel með því hvort þá komi næsti skammtur og taki við af því. Hefur veðrið áhrif á þig? Hvernig? Sendu okkur ábendingu og myndir á ritstjorn@visir.is eða sem Fréttaskot hér.
Hefur veðrið áhrif á þig? Hvernig? Sendu okkur ábendingu og myndir á ritstjorn@visir.is eða sem Fréttaskot hér.
Veður Mosfellsbær Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Sjá meira