Raunhæf skref inn í sterkari framtíð Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 6. mars 2026 08:33 Sveitarfélagið Norðurþing stendur sterkt og mikil tækifæri til uppbyggingar. Á árinu 2024 var fjárfest fyrir um 500 milljónir og ríflega 700 milljónir árið 2025 í A-hluta. Það var mögulegt vegna aga í rekstri og innkomu síðastliðin ár. Engin ný lán hafa verið tekin á kjörtímabilinu fyrren nú þegar við verðum fyrir alvarlegu tekjufalli og fimmtíu milljónum minna í kassann á mánuði. Það er staðreynd sem við verðum að horfast í augu við af ábyrgð og festu. Slíkar aðstæður kalla á erfiðar ákvarðanir. Við megum þó aldrei gleyma því að á bak við hverja tölu eru störf fólks, fjölskyldur og þjónusta sem skiptir íbúa okkar miklu máli. Lántaka var nýlega samþykkt samhljóða og í samræmi við fjárhagsáætlun til að ljúka stórum framkvæmdum sem þegar eru hafnar eða á teikniborðinu eins og félagsmiðstöð og frístund við Borgarhólsskóla og hafnarframkvæmdir við Suðurgarð. Lántaka er varasöm ef engin langtímaáætlun er til eða pólitísk skammtímahugsun ræður för. Ófyrirséð tekjufall Það er samdráttur í atvinnulífinu sem hefur og mun hafa áhrif á rekstur sveitarfélagsins og sem stendur skilar reksturinn engum tekjum í sveitasjóð. Þá gefur augaleið að við verðum að slaka á í öðrum stórum framkvæmdum og setja markmið á smærri verkefni. Auk þess að draga úr, hagræða eða skera niður. Sama hvaða nafni það nefnist. En vanda til verka og af virðingu. Þetta ófyrirséða áfall þýðir að við erum í millibilsástandi, ákveðin óvissa uppi og ákvarðanir eftir því. Aðgerðir og ábyrgð Aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til; fækka fundum í nefndum og ráðum, draga úr þjónustu og breyta opnunartímum, sameina verkefni þar sem því verður við komið, endurskoða samninga o.fl. Fólk hefur m.a. fundið fyrir þessu í snjómokstri og aðgengi að þjónustu sveitarfélagsins. Við hefðum getað gengið lengra eins og með fækkun kjörinna fulltrúa úr níu í sjö og að kjörnir fulltrúar hefðu ekki tekið næstu launahækkun. Sveitarfélag er samfélag Tekjufallið er tímabundið. Við þurfum að nálgast verkefnið af virðingu og ábyrgð að leiðarljósi. Hagræðing snýst ekki um niðurrif heldur um aðlögun. Tryggja að við getum áfram sinnt lögbundnum verkefnum og grunnþjónustu af gæðum. Við erum að forgangsraða verkefnum, endurmeta verkferla og skipulag og leita hagkvæmari lausna án þess að fórna kjarnastarfsemi. Við verðum um leið að sýna skynsemi og sanngirni. Við erum að ræða um störf fólks og þjónustu við borgarana. Sýnum þess vegna mannlega reisn í öllum ákvörðunum og umræðu. Sveitarfélagið er samfélag. Ekki bara rekstrareining. Ef okkur tekst að halda reisn Þrátt fyrir að á móti blási eru allar forsendur fyrir uppbyggingu sterkar. Hjá sveitarfélaginu starfar öflugt fólk, samfélagið getur sýnt samheldni, hér eru traustir innviðir og tækifæri til að byggja upp. Þrengingar geta leitt til umbóta. Það er mikilvægt að öll umræða sé málefnaleg. Við erum öll í þessu saman. Markmiðið er að finna lausnir og leiðir. Ef okkur tekst að halda reisn, sýna samstöðu og hafa fagmennsku að leiðarljósi munum við standa sterkari eftir. Verkefnið er krefjandi og ábyrgt að horfast í augu við það. Störf, fjölskyldur og fyrirtæki skipta okkur öllu máli. Með því að standa saman, hlusta og vinna af heilindum, tryggjum við að sveitarfélagið haldi styrk sínum enda tækifærin á næstunni til að nýta þau. Höfundur er forseti sveitarstjórnar Norðurþings. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Norðurþing Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar