Vilja gagnagrunn um hatursorðræðu og hatursglæpi á Íslandi Lovísa Arnardóttir skrifar 5. mars 2026 06:30 Nefndin telur að betur sé hægt að skrá mögulega mál er varða hatursglæpi og hatursorðræðu á grundvelli kynþáttar og gagnvart hinsegin fólki. Vísir/Sigurjón Nefnd Evrópuráðsins gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi (ECRI) gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að hafa ekki enn komið upp heildstæðum gagnagrunni um hatursorðræðu og hatursglæpi á Íslandi . Nefndin hvetur íslensk stjórnvöld til að dreifa fræðsluefni um bann við mismunun á fleiri tungumálum en íslensku.
Nefndin birti í dag eftirlitsskýrslu sína um framkvæmd Íslands, Lúxemborgar, Norður-Makedóníu og Póllands á tilmælum sem gefin voru út árið 2023 um hatursorðræðu. Í skýrslunni er fjallað um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við tveimur tilmælum nefndarinnar frá árinu 2023. Tilmælin voru annars vegar að stjórnvöld settu á fót yfirgripsmikið gagnasöfnunarkerfi sem byði upp á samþætta og heildstæða sýn á mál er varða hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og gagnvart hinsegin fólki. Samkvæmt tilmælunum lagði nefndin til að gögnin í safninu væru fullkomlega sundurgreinanleg eftir brotaflokki, tegund hatursásetnings, markhópi, svo og meðferð innan réttarkerfisins og niðurstöðu, og að þessi gögn yrðu gerð aðgengileg almenningi. Hins vegar lagði nefndin svo til að yfirvöld gerðu ráðstafanir til að auka vitund almennings um lagaramma gegn mismunun og þau úrræði sem fórnarlömbum stæðu til boða, þar á meðal málsmeðferð fyrir kærunefnd jafnréttismála. Fylgir eftir tilmælum Samkvæmt verklagi nefndar ber henni að fylgja eftir slíkum tilmælum og gerir hún það í þessari nýju skýrslu. Tekið er fram í skýrslunni að niðurstöðurnar taki ekki til neins sem hefur átt sér stað eftir 29. september 2025 því þá hafi svar íslenskra stjórnvalda borist. Í nýrri skýrslu nefndarinnar er farið yfir það sem kom fram í fyrri skýrslu. Þar segir að 2023, þegar tilmælin voru lögð fram, hafi stjórnvöld upplýst nefndina um að miðlægur gagnagrunnur lögreglunnar á Íslandi gerði kleift að gefa til kynna grun um hatursglæp, tegund hatursásetnings og markhóp, en að ekki hefði enn tekist að gera slíkan gagnagrunn fyrir saksóknara eða dómstólana. Vinna við slíkan gagnagrunn væri hafin en samkvæmt nýrri skýrslu er þeirri vinnu ekki enn lokið. Í skýrslu nefndarinnar fá stjórnvöld hrós fyrir að hafa lagt fram þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu en þó er tekið fram að hún hafi svo ekki verið samþykkt. Þingsályktunartillagan var upphaflega lögð fram af Katrínu Jakobsdóttur þegar hún var forsætisráðherra en Bjarni Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, sagði í svari á Alþingi við fyrirspurn um framhald málsins í september árið 2024 að ekki hefði verið tekin ákvörðun um að leggja tillöguna fram að nýju. Nefndin telur að þó svo að málið hafi ekki komist lengra sé samt um jákvæð skref að ræða. Í svörum stjórnvalda í fyrri skýrslu kom einnig fram að bæði lögreglumenn og saksóknarar hefðu fengið viðbótarþjálfun, meðal annars um rétta auðkenningu og skráningu hatursglæpa. Fyrir vikið hafi grunur um hatursglæpi verið flaggaður í 47 málum árið 2023 og í 58 málum árið 2024. Jákvætt að fræða Í skýrslu ECRI-nefndarinnar segir að þó svo að það sé jákvætt að lögregla og saksóknarar hafi fengið þjálfun hafi stjórnvöldum ekki tekist að koma á gagnasöfnunarkerfi um hatursglæpi og hatursorðræðu sem myndi veita góða og heildræna sýn yfir slík mál og að hún telji því að fyrri tilmælum hennar hafi aðeins verið fylgt að hluta. Nefndin telur að rétt væri að fara heildrænt yfir stöðu rannsókna, saksókna og dómsúrskurða á þessu sviði og að gögn um mögulega hatursglæpi sem lögreglan skráir ættu að vera aðgengileg almenningi. Hvað varðar seinni tilmæli nefndarinnar um að yfirvöld gerðu ráðstafanir til að auka vitund almennings um lagaramma gegn mismunun og þau úrræði sem fórnarlömbum standa til boða fagnar nefndin því að stjórnvöld hafi gripið til markvissra aðgerða en bendir á að það efni sem hafi verið framleitt og þær herferðir sem hafi verið farið í, hafi mögulega ekki verið dreift eða miðað að öllum sem á því þyrfti að halda. Sem dæmi hefði mátt gera upplýsingar aðgengilegar á fleiri tungumálum. Fleiri tungumál en íslenska Þau dæmi sem stjórnvöld nefna í þessu samhengi eru veggspjöld sem framleidd voru af Jafnréttisstofu um bann við mismunun, herferðin Orðin okkar sem skipulögð var af Jafnréttisstofu og nýr vefur um aðgerðir gegn mismunun, Stöðvum mismunun. Niðurstaða nefndarinnar er að stjórnvöld hafi framfylgt þessum tilmælum en hvetur þó stjórnvöld til að halda áfram að framleiða efni en að gera það á fleiri tungumálum en bara íslensku.
Tjáningarfrelsi Mannréttindi Evrópusambandið Hinsegin Málefni trans fólks Kynþáttafordómar Tengdar fréttir Mikilvægt að fólk geti stigið fram og greint frá hatursorðræðu Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir afar áríðandi að rými sé í samfélaginu fyrir fólk til að greina frá hatursorðræðu og fordómum. Mikilvægt sé að skrá öll tilfelli og að brugðist sé við þeim. 23. september 2023 16:30 Fagnar aðfinnslum Evrópunefndarinnar Nefndin gagnrýnir íslensk stjórnvöld meðal annars fyrir að hafa ekki fylgt eftir tilmælum um að hér verði sett lög gegn kynþáttamisrétti. 25. febrúar 2015 10:15 Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira
Mikilvægt að fólk geti stigið fram og greint frá hatursorðræðu Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir afar áríðandi að rými sé í samfélaginu fyrir fólk til að greina frá hatursorðræðu og fordómum. Mikilvægt sé að skrá öll tilfelli og að brugðist sé við þeim. 23. september 2023 16:30
Fagnar aðfinnslum Evrópunefndarinnar Nefndin gagnrýnir íslensk stjórnvöld meðal annars fyrir að hafa ekki fylgt eftir tilmælum um að hér verði sett lög gegn kynþáttamisrétti. 25. febrúar 2015 10:15