Úkraína - 24. febrúar 1956 og 2022 Erlingur Hansson skrifar 2. mars 2026 11:48 24. febrúar 2022 réðst her Pútíns inn í Úkraínu. Pútín er einræðisherra sem vill stækka rússneska heimsveldið. Ferill hans er athyglisverður. Hann fæddist er Stalín var enn við völd. Eftir að sá gagnbyltingarforingi hrökk upp af tók við valdbarátta sem lyktaði með sigri Krúsjoffs. Krúsjoff var með völd völd í eina flokknum sem stýrði Sovétríkjunum og réði því hvað var á dagskrá flokksþings sem haldið var í febrúar 1956. Þetta flokksþing var fyrsta flokksþingið sem haldið var eftir dauða Stalíns. 24. febrúar 1956 hélt Krúsjoff ræðu sem var lengi í minnum höfð. Hún var kölluð leyniræðan vegna þess að ekki fengu allir að hlusta á hana. Eggert Þorbjarnarson og Kristinn E . Andrésson voru gestir á flokksþinginu. Þeir fengu ekki að hlýða á þessa frægustu ræðu Krúsjovs. Í þessari ræðu sagði Krúsjov frá ýmsum glæpum sem Stalín hafði forgöngu um meðan Stalín var við völd. Milljónir manna voru teknir saklausir af lífi á valdatíma Stalíns. Krúsjov sagði í leyniræðunni frá ýmsu og kenndi Stalín um þá glæpi sem Stalín vissulega hafði borið ábyrgð á. Þeir sem með völd fóru í Sovétríkjunum voru allir mótaðir af því sem drifið hafði á þeirra daga. Pútin var ekki með nein völd fyrr en eftir að gagnbyltingin í Rússlandi hafði lokið við að umbreyta hagkerfinu í auðvaldsríki á árunum eftir 1990. Eftir að Pútin náði undir sig völdum hefur hann jafnt og þétt reynt að stækka rússneska ríkið. Athafnir hans árið 2022 urðu til þess að finnska þjóðin skipti um skoðun á einni nóttu. Finnland gerðist aðili að NATO með ljúfu samþykki finnsku þjóðarinnar. Almenningur í löndum sem fyrir 1914 voru hluti af rússneska keisaradæminu óttast mjög innrás og innlimun Póllands, Lettlands, Litháens, Eistlands, Georgíu og fleiri landa. Þjóðir þessara landa vilja ekki komast undir járnhæl einræðisherrans í Kreml. Enginn veit hvaða örlög bíða Pútíns. Þjóðir sem bjuggu undir járnhæl keisara Rússaveldis vilja alls ekki að Pútín nái að leggja meira landsvæði undir veldi sitt. Byltingar í Rússlandi árið 1917 breyttu veröldinni. Keisarinn í Pétursborg hafði 1914 ásamt keisurunum í Berlín og Vín steypt veröldinni í heimsstyrjöld. Októberbyltingin í Rússlandi árið 1917 var fyrsta byltingin í sögunni sem gerð var af verkalýðsstéttinni. Helstu foringjar í þeirri byltingu voru Lenin og Trotsky. Stalín var lítt þekktur árið 1917 en náði ekki miklum völdum fyrr en eftir dauða Lenins. Pútín er afsprengi þess samfélags sem gagnbylting Stalíns skapaði. Stalín náði völdum eftir dauða Leníns. Lenín lá helsjúkur á banabeði árið 1922 og árið 1923. Hann fékk gögn um framferði Stalíns er Stalín lét árið 1922 hrinda stjórninni í Georgíu frá völdum þar en setja til valda fylgismenn sína. Lenin lagði til að Stalín yfir rekinn úr starfi aðalritara. Þessi síðasta ósk Lenins rættist ekki. Þvert á móti náði Stalín hægt og hægt meiri völdum. Hann lét taka af lífi nær alla þá sem höfðu forystu um byltinguna í október árið 1917. Árið 1940 náði Stalín loks að láta tilræðismann drepa Trotsky en áður hafði Stalín látið drepa milljónir manna. Eftir 1929 var Stalín einráður og stjórnaði af mikilli grimmd í 24 ár, til dauðadags. Hann hrökk loks upp af á bolludaginn 1953. Hann var forystumaður í pólitískri gagnbyltingu en sú gagnbylting mótaði allt líf og félagsmótun almennings í Sovétríkjunum. Krúsjoff var afsprengi þessa samfélags. Trotsky ritaði bók árið 1936 um Sovétríkin. Í þeirri bók spáir hann framtíð Sovétríkjanna. Sú spá rættist á þann veg að rússneskt auðvaldsríki var endurreist á árunum eftir 1990. Pútín var fulltrúi Sovétríkjanna í Dresden árið 1989. Hann varð vitni að athöfnum fjöldahreyfingar þýskrar alþýðu sem vildi losna undan heljartökum skrifræðis sem stjórnaði hafði Austur-Þýskalandi í 4 áratugi. Þær aðferðir sem Pútin vill nota og hefur notað gegn almenningi er leyniþjónusta, morð á óþægilegum stjórnarandstæðingum, her og kúgun hers á vopnlausri alþýðu. Hann á þetta sameiginlegt með Nikulási öðrum og Stalín. Höfundur er eftirlaunamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar