Tíu manns í árekstri á Suðurlandi Agnar Már Másson skrifar 26. febrúar 2026 15:10 Þyrlan er mætt á vettvang á Biskupstungnabraut. Fólksbíllinn virðist vera kominn út af veginum. Aðsend Að minnsta kosti tveir eru slasaðir eftir að tíu manns lentu í umferðarslysi á Biskupstungnabraut nálægt Geysi eftir hádegi í dag, þegar árekstur varð milli smárútu og fólksbíls. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang og hópslysaáætlun virkjuð.
Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri á Suðurlandi, sagði við Vísi um kl. 15 í dag að árekstur hefði orðið milli smárútu og fólksbíls á Biskupstungnabraut rétt sunnan við Laugarvatnsveg. Hópslysaáætlun hafi verið virkjuð. Samtals væru tíu í slysinu og þar af tveir slasaðir. Um klukkan 15.45 lenti þyrla Landhelgisgæslunnar á Landspítalanum í Reykjavík samkvæmt flugkortagögnum. Óljóst er hvort fleiri hafi verið fluttir. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. „Vinna er enn á vettvangi. Hver verður fluttur hvert liggur ekki fyrir. En allar bjargir eru á staðnum; sjúkrabílar, slökkvilið og þyrlan,“ sagði Þorsteinn við Vísi fyrr í dag. Tilkynning um slysið barst rétt fyrir klukkan 14 í dag. Fréttin hefur verið uppfærð. Í upphaflegri frétt sýndi kortið ranga staðsetningu, þar sem um er að ræða önnur gatnamót Laugarvatnsvegar og Biskupstungnabrautar. Þyrlan tók á loft upp úr 14.30. Hér má sjá hana á leiðinni á vettvang.Skjáskot/ADSBE
Lögreglumál Grímsnes- og Grafningshreppur Samgönguslys Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Innlent Ráðherra byrjar með hlaðvarp Innlent Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira