Þurfi að draga úr ofbeldi gegn eldri borgurum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 22:32 Félag eldri borgara skorar á ríkisstjórnina. Vísir/Arnar Félag eldri borgara skorar á ríkisstjórn Íslands að beita sér fyrir því að umfang og eðli ofbeldis gagnvart öldruðu fólki verði rannsakað og greint. Nauðsynlegt er að útbúa aðgerðaáætlun til að draga úr slíku ofbeldi.
Ályktunin var niðurstaða á aðalfundi Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni í dag. Í janúar var greint frá því að tvöfalt fleiri eldri borgarar leituðu til Bjarkarhlíðar vegna ofbeldis í fyrra en árið áður. Algengast sé að uppkomin börn beiti foreldra sína ofbeldi, til að mynda andlegu ofbeldi og fjárhagsofbeldi. Það geti líka falist í vanrækslu þarfa þeirra á við að neita þeim um lífsnauðsynleg lyf. „Ýmis teikn eru á lofti um að tilfellum um ofbeldi gagnvart öldruðu fólki fari fjölgandi. Vakin hefur verið athygli á að mjög lítill hluti ofbeldis af þessum toga er tilkynntur til lögreglu eða annarra hlutaðeigandi yfirvalda. Skýringar liggja í því að oftast eru gerendur nánir ættingjar, heilbrigðisstarfsfólk, vinir eða trúnaðarvinir sé tekið mið af rannsóknum um þessi mál í öðrum norrænum ríkjum,“ segir í ályktuninni. „Umræða síðustu mánaða um þessi mál hefur leitt í ljós að ofbeldi gegn öldruðu fólki er algengara en flesta hafði almennt grunað.“ Samkvæmt gögnum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar verður um einn af hverjum sex í hópi sextíu ára og eldri fyrir ofbeldi á hverju ári. Þá viðurkenni 75 prósent starfsfólks á stofnunum að hafa beitt ofbeldi.
Eldri borgarar Heimilisofbeldi Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Fleiri fréttir Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Sjá meira