Ekki benda á mig Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar 22. febrúar 2026 22:45 Sagt hefur verið að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Vissulega er það rétt en það er vandasamt að vera fyrirmynd ómótaðs einstaklings. Vera leiðandi og hvetjandi í orðum og gjörðum en líka setja mörk og halda reglu. Ólík erum við öll og mismunandi hvað þarf að gera fyrir hvert barn. Baklandið skiptir miklu máli. En því miður hafa ekki öll börn gott bakland. Foreldrar jafnvel ekki færir um að sinna sínu hlutverki. Þá þarf að senda þau í fòstur, oft til vandalausra. Ábyrgð fósturforeldra er mikil, eins er ábyrgð leikskóla og grunnskóla líka mikil. Það að vera vakandi fyrir því þegar pottur er brotinn og eitthvað ekki í lagi. Á liðnum vikum og mánuðum hefur þjóðin setið agndofa fyrir framan skjáinn er við höfum fengið fréttir af illri meðferð á börnum á fósturheimilum, en í dag eru enn fjöldi barna í fóstri. Einnig fréttir af meintri misnotkun á börnum í leikskólum borgarinnar, nú árið 2026. Hvað er að ? Því eru þau ekki örugg í þessu umhverfi ? Hvað hefur brugðist ? Við getum betur svo miklu betur. Ég þekki þennan málaflokk nokkuð vel enda starfað á Neyðarmóttökunni og skoðað börn í Barnahúsi um árabil. Í vinnu minni sem fæðinga og kvensjúkdómalæknir hef ég allt of oft séð afleiðingar af misnotkun í æsku og öðru kynferðisofbeldi. Það vakti furðu mína að fyrrum forstjóri Barnaverndarstofu skyldi fyrra sig allri ábyrgð á þeim ofbeldisbrotum sem ungu mennirnir í fóstri í Bakkakoti hafa lýst. Til hvers eru yfirmenn slíkra stofnanna ? Það sem fer úrskeiðis á þeirra vakt er á þeirra ábyrgð jafnvel þó að þeim sé ekki kunnugt um það. Það er ábyrgðarhlutverk að sitja í Barnaverndarnefnd og það þarf að velja gaumgæfilega það fólk sem tekur að sér að taka börn í fóstur. Það má ekki vera fjárhagslegur ávinningur af því að fóstra börn heldur ást og umhyggja fyrir börnum og vilji til að koma þeim til aðstoðar í þeirra þrengingum. Hvernig stendur á því að þegar fósturforeldri hefur gengist við því að leggja hönd á barn í sinni umsjá er ekki kærð og málið rannsakað ? Heldur fær bara fleiri börn í fóstur, fleiri fórnarlömb. Það hlýtur að vera að einhverjir í nærumhverfi fósturheimilis þessara drengja hafi vitað að eitthvað var að. En það var bara auðveldara að segja ekkert og gera ekkert. Hver ber ábyrgð á þessu ofbeldi ? Okkur öllum ber skylda til að tilkynna um mál þar sem okkur grunar að eitthvað sé að. Gerendur koma úr öllum stéttum samfélagsins og þeir eru líka konur. Við þá vil ég segja þetta; Hugur ykkar og langanir eru sjúkar, leitið ykkur aðstoðar, ekki eyðileggja líf barna sem bíða þess e.t.v aldrei bætur með því að svala girndar þorsta ykkar. Við sem samfélag getum svo miklu betur. Verum vakandi, sperrum eyrun, tökum niður sòlgleraugun og hlustum á börn og látum þau njóta vafans ef grunur um ofbeldi vaknar. Tilkynnum málið, hringjum í 112. Höfundur er fæðinga og kvensjúkdómalæknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ebba Margrét Magnúsdóttir Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar