Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 17:06 Bláu drullumalli var skvett á heimili Stefaníu. Samsett Stefaníu Helgadóttur, íbúa í Neskaupstað, brá í brún í fyrrakvöld þegar hún sá að lituðu efni hefði verið skvett á heimili hennar. Þetta sé þó ekki í fyrsta skipti sem hún verður fyrir hrekkjum ungmenna en ólíkt áður gáfu ungmennin sig fram, þrifu húsið og fengu því bakkelsi. „
Ég tók í raun og veru ekki eftir neinu fyrr en dóttir mín var að fara út úr húsi um klukkan níu. Þá var búið að sletta þessum bláa lit fyrir utan,“ segir Stefanía í samtali við fréttastofu. Hún hafði samband við lögregluna og þegar hana bar að garði klukkustund síðar var búið að skvetta brúnum lit á húsið. Liturinn reyndist ekki vera málning heldur eins konar drullumall úr hveiti eða kartöflumjöli. Í kjölfarið birti Stefanía færslu á hópspjalli íbúa í Neskaupstað með myndum af lituðu skvettunum. Hún óttaðist fyrst að vökvinn væri málning.Aðsend „Kæru ungmenni sem færðuð mér þessar sendingar: þið megið koma og þrífa þetta. Ég skal lána ykkur fötu og bursta. Ég skal meira að segja gefa ykkur pönnukökur þegar þið eruð búin og fá að heyra hvað ég gerði ykkur og hvernig ég get lagað það,“ skrifaði Stefanía í færslunni. „Kæru foreldrar þessara ungmenna: þið megið gjarnan fylgja börnunum ykkar til mín. Ég vil heyra hvað þið hafið að segja um þetta.“ Bauð skemmdarvörgunum möffins Í gærkvöldi komu þrjú ungmenni heim til Stefaníu og þrifu skvetturnar. „Þau fengu kakó og bananamöffins þegar þau voru búin að þrífa í gærkvöldi, það var snjókoma og kalt. Þau voru búin að vera í eina tvo tíma að skrúbba og þrífa eftir sig og við spjölluðum saman,“ segir hún. „Þessi koma ekki aftur að hrekkja í húsinu mínu,“ bætir hún við. Stefanía vildi sérstaklega taka fram að hún væri einstaklega stolt af ungmennunum sem þorðu að koma og taka afleiðingunum fyrir því sem þau gerðu. Flestir sem brjóta af sér viti að þau séu að gera eitthvað rangt en það sé aðdáunarvert að taka afleiðingunum. Hópur herjar á heimilið Ekki er þetta í fyrsta skipti sem heimili Stefaníu verður fyrir valinu þegar ungmenni taka til við að hrekkja íbúana. Einn ákveðinn ungmennahópur taki heimili hennar sérstaklega fyrir. „Ég bý beint fyrir ofan eitt hótelið í bænum, þeim finnst voða gaman að vera þar í kring. Það voru framkvæmdir við hótelið og hópurinn var að skemma. Ég hafði áhyggjur af þessu þannig ég hringdi og lét vita. Það er kannski út af þessum afskiptum mínum, þau þekkja mig annars líka úr sundlauginni og íþróttahúsinu. Við vorum ekki nákvæmlega sammála um hvernig umgengnin ætti að vera þar,“ segir hún. Hópurinn hefur tekið upp á því að kasta smásteinum í rúðurnar, lýsa inn með laser-ljósi og henda eggjum í bæði glugga og veggi. Til skammar Er Stefanía birti færsluna hrönnuðust inn athugasemdir sem féllu henni ekki í geð. Hún ákvað því að loka á athugasemdirnar. „Það er til skammar að fullorðið fólk skuli láta svona út úr sér. Mér finnst ótrúlegt að fólk skuli hugsa svona hluti um ekki bara börn heldur fólkið í kringum sig og gera öðrum að vera svona lélegar manneskjur,“ segir hún. „Ef fólk þarf að vera að segja svona hluti þá verða þau að tengja það við eitthvað annað en færsluna mína.“
Fjarðabyggð Lögreglumál Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Sjá meira