Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 22. febrúar 2026 12:38 Baldvin Björgvinsson, formaður Félags kennara í rafiðngreinum, myndi vilja sjá tvöfalt fleiri útskrifast úr rafvirkjun á ári hverju. Vísir/Lýður Valberg Árum saman hefur verið mikill skortur á rafvirkjum á Íslandi og enn frekari skortur er yfirvofandi ef ekkert verður að gert. Þetta segir formaður Félags kennara í rafiðngreinum. Helst þyrfti að útskrifa tvöfalt fleiri á ári en nú er gert, þörfin fari vaxandi með aukinni tækniþróun og sjálfvirknivæðingu á meðan fjármagn skorti til að efla iðnmenntun og fjölga í greininni.
Það er misjafnt milli ára hve margir nýir rafvirkjar útskrifast á Íslandi, en tæplega hundrað á ári er algeng tala að sögn Baldvins Björgvinssonar, formanns Félags kennara í rafiðngreinum. „Það þyrfti að vera tvöfalt,“ segir Baldvin. „Staðan er bara einfaldlega þannig að við náum ekki að búa til nóg af rafvirkjum. Það er bara alveg skýrt og það er búið að vera þannig árum saman.“ Sjálfvirknivæðing, gagnaver og viðhald meðal verkefna Það séu engar vísbendingar um að verkefnum sé að fækka, heldur þvert á móti, einkum í ljósi aukinnar tækni- og sjálfvirknivæðingar. „Þessi sjálfvirkni sem fólk sér að er að verða til, fólk sér það kannski skýrast þegar það er að afgreiða sig sjálft í búðinni og það er sjálfvirkni á mörgum öðrum stöðum, og það eru rafmagnstæknimenntaðir einstaklingar sem að þurfa náttúrlega að sjá um að koma þessu upp og síðan að halda þessu við. Og núna á að fara að bæta hressilega í til dæmis gagnaver nálægt Akureyri, það vantar mannskap í það, og það eru ýmis stór verkefni um allt land þar sem vantar meira af rafvirkjum,“ segir Baldvin. Núverandi uppbygging dugi ekki til Hann segir að oft sé talað um það á tyllidögum að það þurfi að efla og styðja við verknám, en að svo virðist sem minna sé um efndir. Lengi hafi verið skortur á rafvirkjum, og þrátt fyrir fögur fyrirheit hafi fjármagn skort til að fjölga nemum í greininni. „Það vantar hreinlega bara fleiri skólastofur fyrir iðngreinar, fleiri stóla eða fleiri sæti fyrir nemendur, það vantar fleiri kennara. Það vantar einfaldlega að leggja meiri pening í verkefnið. Og þó að það sé verið að byggja einhverja aðstöðu núna, þá er það bara alls ekki nóg.“ Oft hafi ekki einu sinni tekist að fjölga í greininni til móts við þá sem hætta í faginu. „Staðan er bara ekki góð í framleiðslu á rafvirkjum,“ segir Baldvin.
Rafmagn Framhaldsskólar Tækni Skóla- og menntamál Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira