Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 19. febrúar 2026 17:41 Norðmenn kannast ekki við fundinn sem Trump talar um. Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti á blaðamannafundi að Norðmenn myndu hýsa fund Friðarráðsins svokallaða. Norðmenn koma af fjöllum.
Í dag fer fram stofnfundur hins umtalaða Friðarráðs Bandaríkjaforseta í Washington. Fjölda Evrópuleiðtoga, þar á meðal Bretlands, Frakklands og Þýskalands hafa afþakkað boð á þennan fund enda virðast þessi samtök hafa verið stofnuð beinlínis til höfuðs Sameinuðu þjóðunum. Á skipuriti ráðsins er nokkuð ljóst hvernig Donald Trump Bandaríkjaforseti vilji að milliríkjasamskipti eigi sér stað. Fast sæti í ráðinu er falt á milljarð dala og svo virðist sem Donald Trump sé æviráðinn forseti ráðsins. Það virðist ekki breytast við það að hann láti af forsetaembætti. Friðarráðið með Ísrael, Furstadæmin og Tyrkland í stafni Ráðið var stofnsett í því skyni að stuðla að endurreisn Gasasvæðisins en árangurinn er ekki beint áþreifanlegur þar. Vopnahlé er í gildi að nafninu til en Ísraelsher gerir enn þá nær linnulausar árásir jafnt á borgara sem vígamenn og því ólíklegt að Hamasliðar gefi upp vopn sín. Auk landanna fyrrnefndu hefur Páfagarður einnig afþakkað boð um sæti í ráðinu og vísaði hann meðal annars til þess að fyrirhuguð verkefni ráðsins væru og ættu að vera á forræði Sameinuðu þjóðanna. Meðal þátttakenda á fundinum í dag verða fulltrúar frá Ísrael, Sádí-Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Tyrklands, Argentínu, Katar og Ungverjalands. Verdens gang greinir frá því í dag að Trump hafi á blaðamannafundi við tilefnið að þrátt fyrir að Norðmenn hafi ekki veitt honum friðarverðlaun Nóbels muni þeir hýsa viðburð á vegum ráðsins. „Það gleður mig að tilkynna að Noregur hefur gengist við því að hýsa viðburð á vegum Friðarráðsins. Þegar ég sá minnisblaðið um Noreg hélt ég að þeir ætluðu að tilkynna um að ég ætti að fá friðarverðlaun Nóbels. En það reyndist ekki vera svo spennandi,“ hefur VG eftir honum. Skýrt að Noregur sé ekki með Miðillinn norski hafði samband við utanríkisráðuneytið norska sem þvertók fyrir fullyrðingar Bandaríkjaforseta. „Noregur mun ekki hýsa viðburð Friðarráðsins,“ hefur VG eftir Ane Jørem upplýsingafulltrúa ráðuneytisins. Orðið ekki er skáletrað í umfjöllun miðilsins. „Það sem vísað er til er að Noregur mun hýsa næsta fund AHLC (Ad Hoc Liaison Committee), nú í vor. Bandaríkin gegna ásamt Evrópusambandinu varaformennsku í þessum hópi sem hefur starfað lengi. Noregur hefur komið því skýrt á framfæri að við munum ekki gerast aðilar að Friðarráðinu og sú afstaða stendur föst,“ segir hún.
Noregur Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Fleiri fréttir Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Sjá meira