Við yrðum á matseðlinum innan ESB Hjörtur J. Guðundsson skrifar 20. febrúar 2026 07:01 Hérlendum Evrópusambandsinnum eins og Degi B. Eggertssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, hefur orðið nokkuð tíðrætt um það að undanförnu að ríki sem ekki ættu sæti við borðið yrðu á matseðli stórveldanna með vísan í ræðu sem Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, flutti fyrr á árinu. Fyrir vikið þyrfti Ísland að ganga í Evrópusambandið. Hins vegar yrði Ísland einmitt á matseðli fjölmennustu ríkja Evrópusambandsins ef til inngöngu landsins í það kæmi enda fer vægi ríkja innan sambandsins við ákvarðanatöku einkum eftir íbúafjölda þeirra. Þannig yrði vægi Íslands í ráðherraráði Evrópusambandsins, valdamestu stofnun þess, allajafna einungis á við 5% af þingmanni á Alþingi. Mörg dæmi eru um það að fjölmennustu ríkin hafi valtað yfir fámennari ríki innan Evrópusambandsins í gegnum tíðina. Til að mynda fyrir jólin þegar Írar vildu að staðið yrði við samkomulag sem gert hafði verið um lágmarksaflahlutdeild þeirra á eigin miðum ef til mikils niðurskurðar kæmi eins og raunin varð þá. Fjölmennari ríki komu í veg fyrir það. Forystumenn í írskum stjórnmálum voru ómyrkir í máli. Pat „the Cope“ Gallagher, þingmaður Fianna Fáil, systurflokks Viðreisnar, talsmaður flokksins í sjávarútvegsmálum og fyrrverandi þingmaður hans á þingi Evrópusambandsins um árabil, sagði um að ræða „fullkominn fjandskap í garð smáríkis“ og talaði um „rándýrseðli“ stóru ríkjanna. Til að hafa einungis hliðstætt vægi og Þýzkaland eitt í ráðherraráðinu þarf 17 fámennari ríki Evrópusambandsins í dag sem flest eru þó milljónaþjóðir. Fjögur fjölmennustu ríki sambandsins, Frakkland, Ítalía og Spánn auk Þýzkalands, hafa samanlagt 57,7% íbúafjöldans og hafa því tögl og hagldir bæði varðandi samþykkt mála og stöðvun þeirra. Talsmenn inngöngu Íslands í Evrópusambandið vilja hins vegar ógjarnan ræða um stöðuna í ráðherraráðinu og telja hagfelldara fyrir sig að tala um þing sambandsins. Þar yrði staðan örlítið skárri vegna lágmarksfjölda þingmanna á ríki sem breytti hins vegar í raun engu. Ísland fengi þannig sex þingmenn af vel yfir 700 eða á við hálfan alþingismann. Deginum ljósara er að Carney átti ekki við slíkt „sæti við borðið“ heldur samstarf ríkja á jafnræðisgrundvelli óháð íbúafjölda. Hins vegar er eðlilegt að miðað sé við íbúafjölda innan Evrópusambandsins enda markmiðið með því og forverum þess verið frá upphafi að til yrði evrópskt sambandsríki og er sú þróun þegar komin langt á þeirri leið. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Evrópusambandið Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar