Hafna kröfum bálstofunnar um endurskoðun starfsleyfis Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. febrúar 2026 19:38 Mynd úr safni þar sem má sjá reykinn úr bálstofunni í Öskjuhlíð. Aðsend Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma kærðu ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að endurskoða starfsleyfi þeirra fyrir bálstofu í Fossvogi fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Nefndin féllst ekki á kröfuna.
Umrædd bálstofa, sem hefur verið starfrækt frá árinu 1948, er til húsa við Kirkjugarðinn í Fossvogi. Í júní 2021 gaf Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur út starfsleyfi fyrir rekstrinum sem var í gildi til 2033. Í október 2024 var starfsleyfið hins vega tekið til endurskoðunar vegna ófullnægjandi mengunarvarnarbúnaðar og aukins ónæðis af völdum reykmengunar samkvæmt úrskurði nefndarinnar. Í kjölfar endurskoðunarinnar voru gerðar verulegar breytingar á nýju starfsleyfi bálstofunnar, þar á meðal var gildistími leyfisins styttur úr tólf árum í eitt. Hertar kröfur voru settar um hvenær starfsemin mættu eiga sér stað, úr því að vera frá sjö á morgnana til fjögur síðdegis í frá hálf sex síðdegis til hálf sjö um morgun en aldrei meira en átta klukkustundir samfellt. Töluvert var fjallað um endurskoðun leyfisins en foreldrar í leikskólanum Sólborg í nágrenni bálstofunnar höfðu miklar áhyggjur af reyk sem leggi reglulega yfir skólalóðina. Þau sendu inn tugi kvartana til Heilbrigðiseftirlitsins með ljósmyndum og myndböndum sér til stuðnings. Engin gögn sýni fram á aukna mengun Í málsrökum Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts er sett út á skerðingu starfseminnar. Miðað við áætlaðan fjölda látinna verði bálstofan að starfa að minnsta kosti fjörutíu klukkustundir á viku til að halda í horfinu. Annars sé hætta á því að líkhús Kirkjugarða Reykjavíkur, sem taki við um 66 prósent látinna, fyllist. Húsnæðið sé ekki í stakk búið að fá búnað í samræmi við bestu fáanlegu tækni en starfsemin hafi samt sem áður verið aðlöguð kröfum eftirlitsins. Þau telja ákvörðun Heilbrigðiseftirlitsins ekki byggja á málefnalegum rökum þar sem þau hafi komið til móts við fyrri tillögur en ekki litið til þess við ákvarðanatökuna. Engin gögn sýni fram á aukna mengun frá bálstofunni síðan árið 2021 og sýndu mælingar á kvikasilfri í jarðvegssýnum árið 2022 að magnið var vel innan viðmiðunarmarka. Því er hafnað að fjölgun kvartana þýði að mengun og ónæði sé meiri en búist hafi verið við þegar starfsleyfið var gefið út árið 2021. Í staðinn er lagt til að heimila brennslu alla virka daga og allan sólarhringinn en taka þess í stað mið af veðurskilyrðum. Þá séu minni líkur á mengun þegar líkofnarnir eru heitir en samkvæmt breyttu starfsleyfi þarf oft að slökkva á ofnunum við kjöraðstæður þar sem ekki megi brenna lengur en átta klukkustundir samfellt. Rykið langt yfir losunarmörkum Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur svarar fyrir og segir að gerð hafi verið krafa um að uppfylla þyrfti kröfur um mengunarvarnir í samræmi við bestu aðgengilegu tækni. Þau hafi fengið ár til að skila tímasettri áætlun um innleiðingu en það hafi ekki gengið eftir þar sem Kirkjugarðar Reykjavíkurprófasts sögðu að ekki væri hægt að bæta við hreinsibúnaði fyrir útblásturinn þar sem búnaðurinn myndi koma í veg fyrir eðlilega virkni ofnanna. Árið 2024 tók kvörtunum vegna lyktarónæðis og reykmengunar að fjölga en yfir allt árið voru þær alls 65 og komu frá þrjátíu einstaklingum. Í ljósi þess hafi verið gefið út nýtt starfsleyfi og hafi þau gefið bálstofunni ítrekað svigrúm til úrbóta. Þá sé kvikasilfur einungis eitt af mörgum mengandi efnum sem geti komið frá bálstofunni og er vísað í mælingar Hafrannsóknarstofnunar þar sem segir að heildarryk í útblæstri bálstofunnar hafi verið langt yfir losunarmörkum, eða 730 mg/Nm3. Á Norðurlöndunum er miðað við 20 og 150 mg/Nm3. Hafna kröfunni Úrskurðarnefndin ákvað að hafna kröfu Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts um að fella úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Nefndin taldi eftirlitinu heimilt að endurskoða leyfið þar sem mengun og ónæði hefðu reynst meiri en búist var við og innleiðing mengunarvarna ekki gengið eftir. Því var þó bætt við starfsleyfið að heimilt væri að veita undantekningu frá fyrirmælum um hvenær bálfarirnar fara fram. Bent er á að það standi til að leggja starfsemina í Fossvogi niður og reisa samhliða nýja líkbrennslu á öðrum stað í Reykjavík. Áform eru um að reisa líkbrennslu í Grafarvogi en sú ákvörðun hefur verið gagnrýnd af íbúum í nágrenninu.
Starfsemi bálstofunnar í Öskjuhlið Heilbrigðiseftirlit Kirkjugarðar Heilbrigðismál Reykjavík Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Fleiri fréttir Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Sjá meira