Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Agnar Már Másson skrifar 14. febrúar 2026 21:04 Tölvuárás var gerð á Grund í desember 2025. Netþrjótar komust í upplýsingar um tugi þúsunda fyrrverandi og núverandi skjólstæðinga, starfsmanna og aðstandenda á Grundarheimilum þegar þeir réðust á netþjóna hjúkrunarheimilanna í desember. Interpol og Europol koma að rannsókn málsins ásamt lögreglu.
Frá því var greint í byrjun desember að óprúttnum aðilum hafi tekist að gera tölvuárás á netþjóna Grundarheimila og þeim tekist að afrita viðkvæmar persónuupplýsingar um skjólstæðinga áður en árásin uppgötvaðist. Meðal þeirra gagna voru upplýsingar um heilsufar og gögn sem tengjast umönnun og veittri heilbrigðisþjónustu á heimilunum. „Allt í það heila tekið“ Ríkisútvarpið greindi frá því í kvöldfréttum sínum að hakkararnir hefðu komist yfir gögn sem næðu mörg ár aftur í tímann og vörðuðu tugi þúsunda manna. Karl Óttar Einarsson staðfestir þetta einnig í samtali við Vísi „Þetta er allt í það heila tekið; núverandi og fyrrverandi heimilismenn, núverandi og fyrrverandi starfsmenn, núverandi og fyrrverandi aðstandendur. Og bæði eru þetta þá látnir einstaklingar og lifandi,“ segir Karl Óttar við Vísi. Hann tekur þó fram að hakkararnir hafi aðeins gert afrit af gögnunum og þeim virðist ekki hafa tekist að taka þau í gíslingu. Þannig hafi Grund enn aðgang að öllum þessum gögnum. Auk þess segir Karl að engar fjárkröfur hafi borist Grund vegna gagnanna og tölvuþrjótarnir hafi ekki hótað hjúkrunarheimilunum með birtingu upplýsinga. Interpol rannsakar málið Enn liggur ekki fyrir hver gerði tölvuárásina. Anton Már Egilsson, forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis, segir að alþjóðalögreglan Interpol og Evrópulögreglan Europol rannsaki einnig málið. Slíkt sé yfirleitt gert í málum sem þessum, þegar erlendir glæpahópar liggja undir grun. Anton segir að engin merki séu um að gögnin séu komin í dreifingu. Syndis vakti huldunetið svokallaða til að kanna hvort einhver birti gögnin, sem hafi ekki gerst enn. Þá hefur enginn lýst yfir ábyrgð á árásinni, en Anton telur það líklega vegna þess hve fljótlega gekk að stöðva hana. Mögulega hafi hópurinn litið svo á að árásin hafi ekki verið nógu „spennandi“ eða árangursrík til að stæra sig af, þar sem ekki tókst að taka kerfin í gíslingu. Anton Már Egilsson, forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis.Bylgjan
Hjúkrunarheimili Tölvuárásir Netöryggi Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira