Leiðtoginn Lilja Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 10:30 Nú stendur Framsókn á tímamótum og kjósum við Framsóknarfólk okkur nýjan formann og forystu um helgina. Á slíkum tímamótum er gott að hugleiða hvað leiðtogi þarf að hafa til brunns að bera, hvaða færni sé ákjósanlegust þegar kemur að því verkefni að leiða samvinnuflokkinn Framsókn. Í grundvallarstefnuskrá flokksins segir: „Framsóknarflokkurinn er frjálslyndur félagshyggjuflokkur sem vinnur að stöðugum umbótum á samfélaginu og lausn sameiginlegra viðfangsefna þjóðfélagsins á grunni samvinnu og jafnaðar.“ Ástæða þess að ég hef valið Framsókn eru einmitt þessi grunngildi Framsóknar, samvinna. Samvinna út á við jafnt sem inn á við. Opinn hugur Fyrir mér þarf góður leiðtogi m.a að búa að þeim eiginleikum að vera heiðarlegur, geta hlustað, verið hugrakkur, hvetjandi og með opinn huga, skorað á hólm, sett fram skýra sýn og umfram allt góður í samvinnu. Aðeins nánar um opinn huga leiðtoga, hvað þýðir það? Í bókinni Leiðtogafærni, sjálfskilningur, þroski og þróun eftir Hauk Inga Jónasson og Helga Þór Ingason segir: „Leiðtogi sem er móttækilegur fyrir hugmyndum og skoðunum þarf að hafa opinn hug, en það er forsenda þess að geta tekið þátt í og stýrt hreinskilnum skoðanaskiptum. Til að stjórna samræðu þarf hann kaldan hug til að meta rök, röksemdarfærslur og skoðanir og hlýtt hjarta til að setja upplýsingar í samhengi við mannlegar þarfir. Hæfni til að leiða uppbyggilega samræðu er forsenda þess að geta fengið fólk til að komast að sameiginlegum niðurstöðum. Samráð af þessu tagi má skilgreina sem færni til að ræða, rökstyðja, hlusta á mótrök, finna lausnir og ná samkomulagi í hópi fólks.“ Þetta eru eiginleikar þess formanns sem ég vil sjá stýra Framsóknarflokknum. Sáum og vökvum Til að fræ vaxi og dafni þarf góð skilyrði til vaxtar og stöðuga umhyggju. Minnum okkur á að það væri engin Framsókn nema fyrir tilstilli grasrótar. Það er grasrótin sem er forsendan fyrir því að við eigum fólk á þingi og grasrótin er einnig forsenda þess að við eigum öflugt sveitarstjórnarfólk um allt land. Framsókn þarf leiðtoga sem sáir og vökvar. Bakland Að eiga Lilju Dögg í baklandinu er dýrmætt. Hún hefur verið mér ákaflega mikilvægur stuðningur í þeim verkefnum sem ég hef staðið frammi fyrir á mínum vettvangi. Lilja er sá leiðtogi sem hefur veitt mér ráð, treyst mér fyrir krefjandi verkefnum, skorað mig á hólm og hrósað. Allt þetta er ég þakklát fyrir því Lilja Dögg hefur gert mig að öflugri málsvara þeirra sem ég gæti hagsmuna fyrir. Í ljósi alls hér að ofan er valið augljóst, Lilja Dögg er sá formaður sem ég mun kjósa næsta sunnudag. Höfundur er framkvæmdastjóri, oddviti Framsóknar og formaður bæjarráðs í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar