Færri krakkar á samfélagsmiðlum en fleiri vingast við gervigreind Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. febrúar 2026 10:59 Skúli segir margt jákvætt í gögnunum. Hlutfall barna á aldrinum níu til tólf ára á samfélagsmiðlum fer lækkandi á Íslandi milli ára og þá fækkar tilvikum stafræns kynferðisofbeldis einnig. Á sama tíma sæki börn meira í Roblox og að eiga í samskiptum við gervigreind. Þetta eru niðurstöður könnunar Netvís.
Um er að ræða þriðja skiptið sem könnunin er framkvæmd en hún var einnig gerð 2021 og 2023. Skúli Bragi Geirdal sviðsstjóri hjá Netvís ræddi könnunina í Bítinu á Bylgjunni með Ingibjörgu Kjartansdóttur verkefnisstjóra Menntavísindasviðs og Menntavísindastofnunar HÍ. Farin að tala í meira mæli við gervigreindarvini „Við erum búin að framkvæma hana 2021, 2023 og núna 2025 og það sem er svo ánægjulegt að sjá er að við sjáum til dæmis hlutfall barna níu til tólf ára inni á þessum vinsælustu samfélagsmiðlum, það er að lækka. Við höldum áfram að sjá líka lækkun á þessu svona stafræna kynferðislega ofbeldi, sendingar og beiðnir um nektarmyndir, þannig að það er mjög margt jákvætt í gögnunum okkar.“ Skúli segir niðurstöðurnar heilt yfir jákvæðar en þeir hjá Netvís reyni alltaf að rýna í gögnin og sjá hvort eitthvað nýtt beri fyrir augu. Hann segir notkun barna á leikjaforritum líkt og Roblox vera að aukast. Þá beri upp ný tíðindi um samskipti barna við gervigreind. „Við horfum alltaf á gervigreindina sem ChatGPT, en gleymum því að það er meira og þegar við förum að spyrja börnin að þá er það til dæmis eins og Character.ai þar sem þau eru að tala við svona gervigreindarvini eða jafnvel setja saman sinn eigin gervigreindarvin, spjallmennið á Snapchat sem dæmi. Þannig að við þurfum að eiga þetta samtal við þau líka, hvaða upplýsingum erum við að deila, í hvað erum við að leita, af því þetta getur auðvitað líka verið góður staður þegar að við erum einmana og vantar einhvern til að tala við, en við þurfum líka að átta okkur á takmörkununum þarna.“ Læri langmest af foreldrum sínum Þau Skúli og Ingibjörg segja að í svörum barnanna megi greina að þau kalli eftir samtali við foreldra sína um netnotkun. Ingibjörg bendir á að börn læri langmest af foreldrum sínum um netnotkun. „Þau læra langmest af foreldrum sínum um örugga netnotkun. Það er langalgengasti hópurinn sem er að kenna þeim. Þau læra eitthvað af vinum sínum líka og læra ekki mikið um örugga netnotkun, raunverulega að vera á netinu, segja þau, þannig að það var svolítið neðarlega í forgangsröðinni.“ Skúli segir árangri hafa verið náð en vandi sé enn til staðar. Jákvætt sé að sjá að meirihlutinn noti netið í uppbyggilegum tilgangi. „Við sjáum samt að þetta eru ennþá of mörg börn sem eru beðin um að senda sér þessar myndir, nektarmyndir og það er ennþá verið að misnota þær, en við erum að ná árangri og við þurfum að minna okkur á það í gögnunum að þetta er ekki allt á leiðinni í verri átt.“
Börn og uppeldi Samfélagsmiðlar Tækni Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Sjá meira