Skoraði tíu mörk í lífsnauðsynlegum sigri ÍR Aron Guðmundsson skrifar 9. febrúar 2026 20:40 ÍR-ingar að slá frá sér í deildinni en þeir eru líka komnir í undanúrslit bikarkeppninnar í handbolta. Fagna hér á þessari mynd sigri í bikarnum fyrr á tímabilinu Instagram/@ir_handbolti Karlalið ÍR í handbolta vann lífsnauðsynlegan sigur gegn HK í Olís deildinni í kvöld. Lokatölur fimm marka sigur ÍR, 36-31.
Fyrir leik kvölsins sat ÍR á botni Olís deildarinnar með fimm stig og fimm stigum á eftir HK sem sat í síðasta örugga sæti deildarinnar, því tíunda. Jafnræði var með liðunum lengi vel í fyrri hálfleik en þegar líða tók á lokamínútur hans tókst heimamönnum í ÍR að byggja forskot sem stóð í fjórum mörkum, 19-15, þegar að flautað var til hálfleiks. Þeirri forystu héldu ÍR-ingar meira eða minna út leikinn, HK-ingar gerðu áhlaup þegar rétt tæpar tíu mínútur eftir lifðu leiks og komu forystu ÍR niður í tvö mörk í stöðuna 31-29 en heimamönnum tókst að stöðva blæðinguna og byggja við forystu sína á ný. Svo fór að leiknum lauk með fimm marka sigri ÍR, 36-31. Algjörlega lífsnauðsynlegur sigur heimamanna sem eru þó enn í botnsæti deildarinnar en nú með sjö stig, tveimur stigum á eftir Þór Akureyri í ellefta sæti og þremur stigum á eftir HK í tíunda sætinu. Markahæsti leikmaður Olís deildarinnar til þessa, Baldur Fritz Bjarnason var markahæsti leikmaður vallarins í kvöld með tíu mörk. Andri Þór Helgason var markahæstur í liði HK með sjö mörk.
Olís-deild karla ÍR Handbolti HK Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira