Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Samúel Karl Ólason skrifar 6. febrúar 2026 11:34 Krónprinsessan Mette-Marit, ásamt Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og um tíma kærustu Jeffreys Epstein, og Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands. EPA/PONTUS HOOK Norskir fjölmiðlar hafa í morgun birt myndir af Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, með þeim Mette-Marit, norskri krónprinsessu, og Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og um tíma kærustu Jeffreys Epstein.
Maxwell situr nú í fangelsi en hún var árið 2021 dæmd til tuttugu ára fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot. Hún var dæmd fyrir að finna og tæla unglingsstúlkur fyrir Epstein að brjóta á og tók hún þátt í einhverjum brotanna. Myndirnar voru teknar í New York í september 2012, á viðburði á vegum Clinton Global Initative, stofnunar Bills Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Meðal þeirra miðla sem hafa birt myndirnar eru VG og Aftonposten í Noregi. Myndin hefur verið mikið til umfjöllunar í Noregi í dag.Skjáskot af vef VG Þær sýna krónprinsessuna ræða við Maxwell en á milli þeirra stendur Dorrit Moussaieff. Samræður þeirra stóðu yfir, samkvæmt VG, í um tvær mínútur. Norskir fjölmiðlar hafa eftir talsmönnum konungsfjölskyldunnar að Mette-Marit muni ekki eftir því að hafa hitt Maxwell eða talað við hana. Maxwell stofnaði árið 2012 umhverfissamtökin TerraMar Project og þau samtök unnu með stofnun Clinton-fjölskyldunnar. Árið 2013 flutti Maxwell erindi á Hringborði Norðurslóða í Hörpu en það erindi snerist um TerraMar. Samtökin lögðu upp laupana árið 2019, eftir að Epstein, sem hafði verið fjárlagslegur bakhjarl samtakanna, svipti sig lífi í fangelsi. Árið 2020 sagðist Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, og eiginmaður Dorritar, ekki hafa þekkt vel til Maxwell þegar hún var fengin til að ávarpa Hringborðið. Þau hafi þó hist í samkvæmi í New York sama ár þar sem af þeim náðist ljósmynd og birt var í erlendum fjölmiðlum. „Hún talaði á Arctic Circle um hafið. Að öðru leyti hef ég engin tengsl við hana og hef ekki hitt hana nema á þessu samkvæmi í New York og þegar hún talaði á Arctic Circle. Epstein hef ég aldrei hitt,“ sagði Ólafur. Bregður nokkrum sinnum fyrir í skjölunum Dorrit og Ólafi bregður fyrir í Epstein-skjölunum svokölluðu. Minnst var á þau í tölvupósti sem sendur var til Epsteins. Rithöfundurinn Deepak Chopra sagðist í póstinum vera í Aspen í Colorado í Bandaríkjunum og tók fram að forsetahjónin fyrrverandi væru þar. Þá er Dorrit einnig nefnd í pósti sem Maxwell sendi í september 2011 til manns sem heitir Leon. Þar segist Maxwell hafa rætt við Dorrit og að hún hafi sagt sér að Leon væri í leit að nýjum stjórnarmanni og sagðist geta aðstoðað hann við það. Ekki er hægt að útiloka að hér sé vísað til annarrar konu sem beri sama nafn og forsetafrúin fyrrverandi. Í póstinum heldur Maxwell áfram að lýsa ráðgjafafyrirtæki sínu og hvernig hún hafi áður hjálpað fyrirtækjum að finna stjórnarmenn en ekki er aftur minnst á Dorrit. Þá kom nafn Dorritar einnig fram í tengiliðaskrá Epsteins sem var fyrst opinberuð árið 2019. Þá sagði Dorrit í samtali við DV að hún ætti marga sameiginlega vini með Epstein og þau hefðu verið nágrannar um tíma. „Jeffrey Epstein bjó í sömu götu og ég í London einhvern tímann á milli 1978 og 1983. Við áttum marga sameiginlega kunningja. Það er möguleiki á því að á einhverjum tímapunkti hafi hann verið með símanúmerið mitt,“ sagði Doritt í svari við fyrirspurn DV um það hvort hún kunni að vera í símaskránni umræddu. Hún sagði jafnframt að hún hafi ekki orðið vitni að neinu óvenjulegu í hegðun Epstein. „Það var ekkert furðulegt við hann.“ Epstein bjó um tíma í Bretlandi en þá vann hann fyrir Douglas Leese, breskan auðjöfur með umfangsmiklar tengingar í hergagnaiðnaði þar í landi og við yfirvöld. Leese réði Epstein sem ráðgjafa. Leese er sagður hafa kynnt Epstein fyrir öðrum breskum auðjöfrum og fyrir nýjum hæðum ríkisdæmis. Að endingu slitnaði vinskapur þeirra þegar Leese sakaði Epstein um að hafa eytt peningum hans óhóflega. Fréttin hefur verið uppfærð.
Mál Jeffrey Epstein Noregur Kóngafólk Ólafur Ragnar Grímsson Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Fleiri fréttir Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Sjá meira