Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. febrúar 2026 11:33 Guðlaugur Kristmundsson, formaður Félags fósturforeldra, og Svavar Þór Georgsson, einn af þeim níu sem sögðu frá dvöl sinni á Bakkakoti. Formaður Félags fósturforeldra fer hörðum orðum um kerfi sem passa eigi upp á fósturbörn og -foreldra en framkvæmi ekki lögboðið eftirlit. Hann gefur lítið fyrir orð bæði forsætisráðherra og forstjóra Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) um málefni fósturfjölskyldna. Könnun félagsins sýni fram á að ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturforeldra. „
Ég get ekki ímyndað mér annað en að íslenskt samfélag deili þeim óþægindum og reiði með samfélagi fósturforeldra þegar við heyrum af meðferð þeirra drengja sem voru sendir í fóstur í Bakkakoti,“ segir Guðlaugur Kristmundsson, formaður Félags fósturforeldra, í skoðanagrein á Vísi. Félagið hefur það að markmiði að bæta líf fósturbarna og -fjölskyldna. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur tók fyrir mál níu karlmanna sem vistaðir voru í fóstri á Bakkakoti á tímabilinu 1975 til 2002. Mennirnir lýsa allir ofbeldi sem húsmóðir Bakkakots beitti þá, andlegu, líkamlegu og kynferðislegu. „Ég gat ekki ímyndað mér að ég fengi símtöl og skilaboð frá fólki sem var í Bakkakoti og segði mér frá ógeðfelldara ofbeldi og misnotkun en þeirri sem var lýst í þætti Kveiks,“ segir Guðlaugur. Fimmtungur fósturforeldra fær ekki árlega heimsókn Velferð fósturbarna hefur verið mikið til umræðu undanfarna daga og sagði Guðlaugur í viðtali á Rúv að ríkið hafi ekki hugmynd um hversu mörg börn séu í fóstri. Í kjölfar umfjöllunarinnar sendi Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri GEV, frá sér tilkynningu þar sem hún vísar því á bug að GEV hafi sýnt sinnuleysi eða vísað málum frá þegar til þeirra er leitað. Þar er tekið fram að fyrir ári síðan hófst stór frumkvæðisathugun sem snýr sérstaklega að vinnslu fóstur- og vistunarmála sveitarfélagsins. Þá nái eftirlitsheimildir stofnunarinnar ekki til heimila sem hafa verið lokað líkt og Bakkakot. Herdís ítrekar jafnframt að fólk megi hafa samband hafi það áhyggjur af þjónustu við börn á fósturheimilum eða eftirliti sveitarfélaga með fósturforeldrum. Guðlaugur gagnrýnir orð Herdísar harðlega. Félag hans hafi framkvæmt könnun árið 2025 og sýndu niðurstöðurnar fram á að fimmtungur fósturforeldra kannist ekki við að árlegt og lögboðið eftirlit væri framkvæmt. Þá sýnir könnunin fram á að fimm embætti barnaverndarþjónustu á landinu sinni engu eftirliti. „Ég fagna því að forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) sé mætt til umræðu um málefnið, en hún hefur sjálf tekið þátt í þeim samtölum sem félagið hefur átt við stofnunina. Það hefði verið heiðarlegra af forstjóranum að draga það fram hversu langan tíma það hafi tekið fyrir okkur að fá fyrstu áheyrn og að forstjórinn sjálfur hafi ekki verið til viðtals í því takmarkaða samtali,“ segir hann. Hann telur að málin sem GEV taki að sér snúi að afmörkuðum þáttum og einstaka málum í stað kerfislægra vandamála í málaflokkum sem félag hans hafi ítrekað bent á. „Við höfum kallað eftir því að kannað yrði og sveitarfélögin krafin um það hvernig þau framkvæma lögboðið eftirlit sem þau sjálf eiga að sinna með þeim börnum sem þau senda í fóstur. Það hefur enn ekki gerst á þeim árum sem stofnunin hefur starfað.“ Vonsvikin með ríkisstjórnirnar Þrír þeirra sem stigu fram í umfjölluninni um Bakkakot funduðu með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í gær. Þeir vilja að fósturkerfið verði tekið til alvarlegrar skoðunar og segja mál þeirra hafa hreyft við Kristrúnu. Hún veitti fréttastofu ekki viðtal í kjölfar fundarins en segir Guðlaugur að hún hafi sagst vonast til þess að lagafrumvarp sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda í vetur lagi stöðu fósturmála á Íslandi. Um er að ræða frumvarp til laga um barnavernd sem var í samráðsgátt nóvember 2025 en hefur ekki verið lagt fyrir þingið. Frumvarpið er á herðum Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. „Það frumvarp gerir það ekki og það var ekki ásetningur um slíkt heldur kemur fram í athugasemdum þess frumvarps að fósturmál verði tekin til frekari skoðunar síðar því frekari breytingar séu ekki tímabærar að svo stöddu. Það vorum við sem erum föst í þessu kerfi sem vorum að vona, þið stóðuð ekki undir þeim væntingum með því frumvarpi sem var lagt fram til samráðs,“ segir Guðlaugur. Hann segir að barnamálaráðherra hafi tilkynnt Félagi fósturforeldra að ákveðið hafi verið að undanskilja fósturmál að sinni. Síðasta rúma áratuginn hafi félagsmenn gengið eyðimerkurgöngu innan kerfisins en Barna- og fjölskyldustofa og GVE hafi leitað til þeirra þar sem þau hafi ekki yfirsýn yfir kerfið eða fósturforeldra. „Við erum að biðja um sterkari og öflugri skref heldur en hingað til hafa verið tekin. Við viljum sjá forsætisráðherra sem gerir meira en að binda vonir við eigin aðgerðir. Það erum við sem erum vonsvikin af verkum ríkisstjórnar nú og fyrri ára.“
Ofbeldi gegn börnum Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Barnavernd Fósturbörn Fósturfjölskyldur Mál fósturbarna á Bakkakoti Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Sjá meira