„Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 5. febrúar 2026 21:34 Guðmundur Birkir Þorkelsson, sem á heiður skilinn fyrir að hóa saman félögum sínum til að kenna nemendum skólans að spila bridge. Magnús Hlynur Hreiðarsson Það var líf og fjör í Menntaskólanum að Laugarvatni í vikunni þegar nemendur fengu nokkra fyrrverandi nemendur, sem voru meðal annars í skólanum fyrir 50 árum til að koma í heimsókn og kenna núverandi nemendum að spila bridge. Uppátækið vakti mikla athygli og höfðu nemendurnir ekki síður gaman af því en „gömlu“ bridgespilararnir.
Í dag eru tæplega 160 nemendur í Menntaskólanum að Laugarvatni þar sem um 60 prósent nemenda eru stelpur og 40 prósent strákar. Bridge var mikið spilað í skólanum á árum áður en um aldamótin datt áhugi nemenda nánast alveg niður og spilið hefur varla verið spilað í skólanum síðan þá. Það þótti því frábært að fá gömlu bridgekempurnar til að koma í skólann til að kenna áhugasömum nemendum þetta skemmtilega spil en Laugvetningurinn Guðmundur Birkir fór fyrir hópnum. „Við eldri ML- ingar höfum áhyggjur af því að þau kunni ekki nóg í bridge hérna í Menntaskólanum, þau séu bara að syngja og í símanum náttúrulega,” segir Guðmundur hlæjandi. Þannig að þið eruð allir svona gamlar briddgekempur? „Heldur betur og það var alveg rosalegur áhugi á bridge allar götur frá því að skólinn var nánast stofnaður. Svo ætlum við að bjóða þeim að vera með námskeið á þeirra opnu dögum, sem heitir Dagamunur núna í mars og halda áfram með kennsluna,” segir Guðmundur Birkir. „Gömlu“ ML-kempurnar að spila bridge í skólanum.Magnús Hlynur Hreiðarsson Og nemendur voru ánægðir með framtakið, sem Guðmundur Birkir og ML-sveitin hans sýndu með því að mæta í skólann með kennsluna. „Okkur finnst þetta bara mjög skemmtilegt og góð tilbreyting. Nemendur kunna almennt ekki að spila bridge, við erum bara að læra,” segir Aðalheiður Sif Guðjónsdóttir, varastallari skólans. Kennslan gekk vel og allir voru ánægðir með framtakið.Magnús Hlynur Hreiðarsson Og Menntaskólinn að Laugarvatni, hvernig skóli er hann? „Þetta er bara besti skólinn á landinu,” segir Aðalheiður án þess að hugsa sig um. „Þetta er geggjað en þetta er í fyrsta sinn, sem ég spila bridge og þrátt fyrir að pabbi minn sé búinn að reyna að útskýra þetta fyrir mér þá hef ég aldrei náð þessu,” segir Allan Hólm Rúnarsson, nemandi við skólann alsæll með kennsluna. Um 160 nemendur eru í dag í Menntaskólanum að Laugarvatni og líkar námið vel í skólanum. Flestir búa á heimavist.Magnús Hlynur Hreiðarsson Heimasíða skólans
Bláskógabyggð Skóla- og menntamál Bridge Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Sjá meira