Ísland, landið sem á nú engan að Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar 4. febrúar 2026 12:47 Margir hafa áhyggjur af slakri lestrargetu barna á Íslandi. Nú blasir þó við alvarlegri mynd: á Alþingi virðist ólæsi vera orðið kerfisbundið vandamál. Frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi er ekki aðeins umdeilt. Það er með ásetningi illskiljanlegt. Og það eitt og sér er stórhættulegt.Ólæsileg lög eru verri en engin lög, því þau skapa blekkingu um stjórn og ábyrgð á meðan raunverulegar ákvarðanir eru faldar. Þegar kjörnir fulltrúar viðurkenna með orðræðu sinni að þeir ,skilji’ ekki frumvarp sem þeir styðja eða tala þvert á merkingu þess, er vandinn ekki þeirra einn. Þá er vandinn í sjálfri lagasmíðinni. Slík lög færa vald frá Alþingi og almenningi til ráðherra, stofnana og reglugerða sem verða settar síðar — utan lýðræðislegrar umræðu. Í frumvarpinu er talað um varúð og vernd. En í lagatextanum sjálfum er ekkert bannað, aðeins „metið“.Skýrasta dæmið er þetta: eldi á frjóum laxi í opnum sjókvíum er ekki bannað. Í stað þess er erfðablöndun skilgreind sem „áhætta“ sem á að reikna með líkani. Mótvægisaðgerðir eru heimilaðar fyrirfram, án þess að sýnt sé fram á að þær virki. Þetta er ekki varúðarráðstöfun. Þetta er lagaleg samþykkt á óafturkræfum skaða, svo lengi sem hann fellur innan reiknaðra marka. Þegar tjón verður er alltaf hægt að segja: „við reyndum“. Náttúran hefur engin bindandi réttindi. Sama gildir um eftirlitið. Sama stofnun á bæði að efla atvinnugreinina og hafa eftirlit með henni. Þetta er augljós hagsmunaárekstur. Strangt eftirlit verður undantekning, ekki regla. Þjóðinni er sagt að fyrirtækin muni „borga skatta“. En frumvarpið tryggir engan auðlindarentuskatt og enga hlutdeild þjóðarinnar í hagnaði af nýtingu hafsins. Ef þetta verður arðbær atvinnugrein, rennur arðurinn til einkaaðila. Ef hún mistekst, situr almenningur uppi með áhættuna. Hvar eru landsmenn? En það sem er verst er ekki aðeins lagasmíðin. Það er sinnuleysið.Í stað þess að friða firðina, vernda þá og gera þá að þjóðgörðum framtíðarinnar, er verið að breyta þeim í iðnaðargrútarpolla. Firðirnir eru ekki mannlausir auðir blettir á korti. Þeir eru útlimir landsins okkar — lífríki, fegurð, saga og sjálfsmynd. Þjóð sem er of værukær til að kynna sér málin hefur afsalað sér ábyrgð. Þjóð sem kann ekki að fara með slíka ábyrgð er augljóslega ekki hæf að fara með hana. Og þá stöndum við frammi fyrir þessu:: Þjóð sem snýr baki við landinu sínu glatar sjálfri sér. Í málum sem varða óafturkræfan skaða á lífríki Íslands er það: að kunna ekki, að nenna ekki, að greina og skilja sér til gagns, engin afsökun. Ólæsileg lög eru verri en engin lög. Þetta frumvarp má aldrei verða að lögum. Höfundur er leikkona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Mest lesið Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar