Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Árni Sæberg skrifar 3. febrúar 2026 09:41 Lögreglan í Vestmannaeyjum fer ekki með rannsókn málsins. Vísir/Ívar Fannar Rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á andláti á sjúkrastofnun í Vestmannaeyjum hófst um helgina en andlátið bar að í síðustu viku. Ríkissaksóknari fól embættinu að sinna rannsókninni þrátt fyrir að hún ætti að heyra undir Lögregluna í Vestmannaeyjum.
Þetta segir Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á Suðurlandi, í samtali við fréttastofu. Hann kveðst ekki geta gefið upp ástæður þess að embætti hans var falin rannsóknin. Eru einhverjir hagsmunárekstrar eða eitthvað slíkt? „Ég geti ekkert farið út í það neitt nánar, það verður bara að koma í ljós á seinni stigum.“ Taka ákvörðun um gæsluvarðhald í dag Í gær var greint frá því að tveir hefðu verið handteknir í tengslum við andlátið. Í frétt Mbl.is um málið var haft eftir heimildum miðilsins að um starfsmenn hjúkrunarheimilis í bænum væri að ræða. Fréttastofu hafa borist ábendingar þess efnis en Jón Gunnar segist ekkert geta staðfest í þeim efnum. Hann segir að skýrslutökur yfir sakborningunum tveimur séu í fullum gangi og að ákveðið verði í dag hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Heimilt er að halda grunuðum manni í haldi í sólarhring án gæsluvarðhaldsúrskurðar. Tjáir sig ekki um hvort áverkar séu á líkinu Er þetta rannsakað sem manndráp? „Við erum að rannsaka andlát og hvort það hafi átt sér stað með saknæmum hætti eða ekki,“ segir Jón Gunnar. Hann geti ekki tjáð sig um hvort áverkar séu á hinum látna. Leiðrétting: Upphaflega var ritað að Ríkislögreglustjóri hefði falið Lögreglunni á Suðurlandi að rannsaka málið. Rétt er að Ríkissaksóknari gerði það. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Lögreglumál Lögreglan Vestmannaeyjar Rannsókn á andláti í Hraunbúðum í Eyjum Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Sjá meira