Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Samúel Karl Ólason skrifar 2. febrúar 2026 17:00 Epstein svipti sig lífi í fangelsi árið 2019. AP/Jon Elswick Alríkissaksóknari sem lagði til árið 2007 að Jeffrey Epstein yrði ákærður í 32 liðum, sagði meðal annars að Epstein hefði hótað einu fórnarlamba sinna, sextán ára stúlku, og sagt að „slæmir hlutir“ gætu komið fyrir hana, ef hún talaði við yfirvöld. Hann var þá sakaður um að hafa brotið á fjölda stúlkna og ungra kvenna yfir sex ára tímabil.
Þetta kemur fram í ákærudrögum saksóknarans sem opinberuð voru sem hluti af Epstein-skjölunum svokölluðu á föstudaginn. Þar eru dregnir fram hinir ýmsu glæpir sem Epstein var sakaður um á þessum tíma. Áhugasamir geta séð drögin hér á vef dómsmálaráðuneytisins. Þau eru 56 blaðsíður að lengd. Mikil eftirvænting hefur ríkt eftir þessu skjali í þeirri von að það myndi varpa frekara ljósi á mjög svo umdeilt samkomulag sem Epstein gerði árið 2008. Áður en hann var ákærður af alríkisstjórn Bandaríkjanna, gerði Epstein þó mjög svo umdeilt samkomulag við Alexander Acosta, sem var þá einnig alríkissaksóknari í Flórída. Það samkomulag fól í sér að hann þurfti að gangast við tveimur ríkisákærum og að sitja í lágmarksöryggisfangelsi í einungis þrettán mánuði. Þannig komst hann einnig hjá alvarlegri alríkisákæru. Einnig stöðvaði samkomulagið rannsókn Alríkislögreglu Bandaríkjanna og fól í sér að ekki væri hægt að ákæra einhverja af mögulegum samverkamönnum hans. Acosta varð atvinnumálaráðherra á fyrra kjörtímabili Donalds Trump en sagði af sér eftir að samkomulagið við Epstein komst í umræðuna. Sjá einnig: Atvinnumálaráðherrann Acosta segir af sér í tengslum við Epsteinmálið Án samkomulagsins stóð Epstein frammi fyrir áratugalangri fangelsisvist í alríkisfangelsi. Þá fékk hann að fara út úr fangelsinu á daginn, til að vinna á skrifstofu sinni. Eftir afplánunina gekk Epstein svo laus þar til hann var handtekinn í júlí 2019. Seinna það sama ár svipti hann sig lífi í fangelsi. Í lok árs 2020 gáfu forsvarsmenn dómsmálaráðuneytisins út skýrslu þar sem fram kom að Acosta og aðrir sem komu að samkomulaginu við Epstein frá 2008 hefðu ekki brotið lög en þeir hefðu sýnt „lélega dómgreind“. Fjórtán til 23 ára gamlar Í drögunum segir meðal annars að Epstein og tveir samverkamenn hans hafi verið sakaðir um að flytja stúlkur, yngri en átján ára gamlar, til heimilis hans í Flórída þar sem hann hafi brotið á að minnsta kosti sumum þeirra. Tekið er fram í drögunum að mikil hætta sé á því að Epstein gæti flúið undan ákærum og að hann hafi á þessum tíma áfram ógnað ungum konum og stúlkum. Sjá einnig: Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Epstein var sagður hafa fengið til sín fjórtán til 23 ára gamlar stúlkur og konur til að nudda sig eða til að hafa við sig mök. Í einhverjum tilfellum voru þær fáklæddar eða naktar á meðan þær nudduðu hann og braut hann einnig á þeim eða fékk þær til að hafa við sig mök. Sumar þeirra hitti hann einu sinni en aðrar margsinnis, samkvæmt drögunum. Hann mun einnig stundum hafa hitt tvær á sama tíma. Þá fengu stúlkurnar og konurnar fundarlaun fyrir að færa honum aðrar konur og stúlkur. Ellefu þeirra eru sagðar hafa verið í sama skólanum. Hótaði einni Í drögunum segir einnig að í júlí 2004 hafi Epstein hótað stúlku sem var þá sextán ára gömul. Hann mun þá hafa sagt henni að ef hún segði frá því sem gerðist heima hjá sér myndu „slæmir hlutir“ koma fyrir hana. Fréttakona MSNOW birti í gær bréf sem Ann Marie Villafana, saksóknarinn sem skrifaði drögin að ákærunum, sendi til yfirmanna sinna, þeirra Joff Sloman og Alexander Acosta, í janúar 2008. Þar segir Villafana frá því að hún hafi rætt við fórnarlömb Epsteins. Ein þeirra sagðist fá martraðir um Epstein og önnur sagðist miður sín yfir fregnum af þá væntanlegu samkomulagi Epsteins við Acosta. „Þessar stúlkur eiga svo miklu meira skilið en þær hafa fengið hingað til og ég hata að finnast ég ekkert geta gert til að hjálpa þeim.“ “I wish you could have been there to see how much this has affected them.”—former Florida federal prosecutor Ann Marie Villafana, who led the initial Epstein investigation, to her bosses Jeff Sloman and then-U.S. Attorney Alex Acosta, in Jan. 2008. pic.twitter.com/4q3cq2fG9Q— Lisa Rubin (@lawofruby) February 1, 2026
Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Tengdar fréttir Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir þá fugla versta sem skíta í eigin hreiður. Hann er afar ósáttur við að því sé slegið upp að nafn hans hafi verið að finna í Epstein-skjölunum. 2. febrúar 2026 14:37 Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta Lögmaður Þorbjörns Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og formanns Nóbelsnefndarinnar, telur ástæðu til að rannsaka frekar hvort að skjöl úr rannsókn á Jeffrey Epstein séu ósvikin. Fjölskylda Jagland heimsótti Epstein og hann var sjálfur í samskiptum við kynferðisbrotamanninn alræmda. 2. febrúar 2026 13:03 Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Joanna Rubinstein, yfirmaður flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Svíþjóð, sagði af sér eftir að í ljós kom að hún hefði heimsótt einkaeyju Jeffreys Epstein, bandaríska kynferðisbrotamannsins. Hún segist hafa vitað af brotum Epstein en ekki umfangi þeirra. 2. febrúar 2026 11:13 „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ spyr fréttastjóri hjá Aftenposten í samnefndri grein sem birtist í dag. Birting tölvupóstasamskipta hennar og barnaníðingsins Jeffrey Epstein á dögunum bætir gráu ofan á svart hvað stöðu hennar innan konungsfjölskyldunnar varðar. 1. febrúar 2026 18:30 Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Fleiri fréttir Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Sjá meira
Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir þá fugla versta sem skíta í eigin hreiður. Hann er afar ósáttur við að því sé slegið upp að nafn hans hafi verið að finna í Epstein-skjölunum. 2. febrúar 2026 14:37
Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta Lögmaður Þorbjörns Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og formanns Nóbelsnefndarinnar, telur ástæðu til að rannsaka frekar hvort að skjöl úr rannsókn á Jeffrey Epstein séu ósvikin. Fjölskylda Jagland heimsótti Epstein og hann var sjálfur í samskiptum við kynferðisbrotamanninn alræmda. 2. febrúar 2026 13:03
Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Joanna Rubinstein, yfirmaður flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Svíþjóð, sagði af sér eftir að í ljós kom að hún hefði heimsótt einkaeyju Jeffreys Epstein, bandaríska kynferðisbrotamannsins. Hún segist hafa vitað af brotum Epstein en ekki umfangi þeirra. 2. febrúar 2026 11:13
„Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ spyr fréttastjóri hjá Aftenposten í samnefndri grein sem birtist í dag. Birting tölvupóstasamskipta hennar og barnaníðingsins Jeffrey Epstein á dögunum bætir gráu ofan á svart hvað stöðu hennar innan konungsfjölskyldunnar varðar. 1. febrúar 2026 18:30